laugardagur, september 24, 2005

Skellti mér með Boggu í enskupartý á Hressó í gær og hitti þar fullt af skemtilegu fólki bæði í ensku og sálfræði. Dansgólfið var tæklað og hin ýmsu "move" bættust í safnið. Var reyndar ekkert svo lengi en hér eru þær myndir sem að ég náði að taka.

fimmtudagur, september 22, 2005

Svona þannig að þið haldið ekki að lífið sé bara djamm þá er ég búin að henda inn myndum úr saumó sem að hún Bogga hélt í kvöld. Hún bauð okkur upp á dýrindis indverskan mat með nan brauði og ljúffenga brúnköku "a la Bogga" í eftirrétt. Á meðan við borðuðum horfðum við á Leitina sem að olli miklum vonbrigðum. Vonandi á spennan eftir að aukast. Hér eru myndirnar.

miðvikudagur, september 21, 2005

Búin að bæta við nokkrum skemmtilegum myndum frá því á laugardaginn sem að ég fékk hjá Sigrúnu vinkonu.
Góða skemmtun.

mánudagur, september 19, 2005

DJÖ... Hrönn bara búin að klukka mig sem að þýðir að ég verð að koma með fimm atriði af handahófi um sjálfa mig eða useless info...

1. Ég þoli ekki að sjá sæta stráka í ljótum skóm...
2. Er meinilla við öll skordýr og fugla..sérstaklega dúfur
3. Elska að vera góð við aðra..
4. Á bestu vinkonur í heimi og veit það vel..
5. Finnst voðalega gaman að skemmta mér..hehe

Jæja vona að þetta sé nógu useless, hm veit ekki hverja ég á að klukka en ég held að ég klukki Sigrúnu, Hrefnu og Gene. Good luck you guys!

sunnudagur, september 18, 2005

Svaðalegt djamm í gærkveldi, eins og vanalega, hehe. Hittumst hjá mér og fórum svo í partý á Laugaveginn. Eftir það var haldið á Vegamót þar sem að restinni af kvöldinu var eytt. Myndir má finna hér.

sunnudagur, september 11, 2005

Ég, Sigrún og Dóri kærastinn hennar skelltum okkur á smá pöbbarölt í gærkveldi. Skelltum okkur á nokkra af steiktari stöðum bæjarins en þetta endaði nú bara sem hið ágætasta kvöld. Myndir frá kvöldinu má sjá hér.

sunnudagur, september 04, 2005

Kíkti út á lífið á laugardaginn með Hrefnu, Eddu og Andreu. Byrjuðum við á því að fara út að borða á Caruso og svo voru helstu staðir bæjarins þræddir. Hér eru myndirnar frá þessu frábæra kvöldi.

fimmtudagur, september 01, 2005

Loksins er ég búin að setja inn myndir af djamminu og voru þessar teknar í október á síðasta ári þegar að við fórum stór hópur til London að sjá Óla og félaga spila.

Hér eru myndir úr gæsuninni hennar Sædísar og svo lofa ég að þessum brúðkaups og gæsa myndum er lokið og næst verða það bara djamm, djamm, djamm myndir...

Tríóið kolvitlaus í rífandi....

Myndir, myndir, myndir...allt að verða vitlaust!!! Hér eru myndir sem úr brúðkaupi Chris og Gigi sem var haldið í Róm sumarið 2003.

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni