miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Blah........

Oh já þannig er þetta bara á þessum tíma ársins!!! Nákvæmlega ekkert að gerast nema rigning, rigning, rigning og prófastress!!! Á bara þessa viku eftir í vinnunni og svo er ég farin í upplestrarfrí!!! Hugsa nú að það veiti ekki af því þar sem ég er nánast ekkert búin að mæta í skólann í vetur!!! En ljósi punkturinn er sá að það styttist nú heldur betur í jólafríið í útlöndum og spennan eykst með hverjum deginum sem líður!!! Jæja eins og ég segi blah.....hef ekkert meira um málið að segja!!!

föstudagur, nóvember 16, 2007

Loksins er ég búin að hafa tíma til að setja myndirnar frá þrítugsafmælinu hans Ægis inn á tölvuna mína og ég sver það ég er búin að vera í hláturskasti allan tímann, vááááá hvað þetta var skemmtilegt kvöld!!!














Maður hitti endalaust mikið af fólki sem maður er ekki búinn að sjá í heila eilífð og þónokkra furðulega karaktera í þokkabót!!! Ég og Hilli skemmtum okkur þrusuvel og dönsuðum af okkur skóna!!!














Afmælispartýið var algjör snilld og það er langt síðan ég hef heyrt jafnmikið af skemmtilegri tónlist eins og var í boði þetta kvöld!!! Það var live tónlist nánast allt kvöldið og svo í blálokin þá tók við plötusnúður sem hélt áfram að spila sama gamla góða indie rokkið!!! Ægir steig að sjálfsögðu upp á svið með hljómsveitinn og tók nokkra vel valda slagara við miklar undirtektir!!!



Eftir þónokkurn tíma héldum við ásamt frekar stórum hóp á smá skemmtistaðarölt á B5 og Óliver meðal annars og enduðum svo á gamla, "góða = not so any more" Kaffibarnum!!! Í lok kvöldsins var síðan komið við á Pizza Pronto þar sem að okkur var meðal annars boðið að koma heim að "spoona" af einhverjum hrikalegum gaur, hahahahaha!!! Hver segir svona, kunni hann í alvöru ekki betri pikk-öpp línu en þetta!!! Kommon!!! Síðan var Hildur svo væn að fylgja mér að leigubílaröðinni þar sem að ég er svo skíthrædd við alla þessa pólverja og bókstaflega harðneita að vera ein niðri í bæ!!! Því miður gekk röðin ekki eins hratt og ég var að vona og mátti ég því standa þarna alein skjálfandi úr kulda í rúman klukkutíma og ég sver það mér hefur aldrei verið eins kalt eins og þegar ég loksins kom heim!!!

Svo er þessi vikan bara búin og það er komin helgi, thank god!!! Það verða bara rólegheit í kvöld en á morgun verður líklegast kíkt aðeins út enda búið að sannfæra mig um það að þetta sé nú síðasti séns fyrir prófatörnina, hehe, já það þarf ekki mikið til að sannfæra mig!!!

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Oh ég var hjá pabba áðan í mat og var að skoða nýja i-phone-inn hans og núna er ég bara sjúk!!! Það er ekki í lagi með Apple delluna hjá þessari familíu, hehe!!! Það er sko nánast hægt að gera allt á þessum síma og svo er hann i-pod í þokkabót!!! Gargandi snilld!!! Núna er það bara spurningin að fara að safna sér fyrir slíkum grip en ég hef lúmskan grun um að hann verði rándýr þegar hann kemur loks í sölu hérlendis!!!














Í dag hringdi ég á skrifstofuna niðri í skóla og eyddi dágóðum tíma í að tala við einn ráðgjafa þar í sambandi við námið hjá mér og hvernig það væri að taka masterinn í öðru fagi!!! Hún tók þessu bara svona glimrandi vel og ætlar að senda mér póst ASAP með upplýsingum þannig að vonandi fer framhaldið að ráðast!!! Þarf líklega að fara í e-ð undirbúningsnám en get byrjað í því strax eftir áramót því það eru bara valin fög úr grunnnáminu sem eru í þessu undirbúningsnámi!!! Ó já það er alveg ótrúlegt hvað hlutirnir geta breyst hratt þegar maður er kominn með ákveðna stefnu í lífinu!!! Fingers crossed að allt gangi upp!!!

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Jæja þá eru ekki nema:

28 dagar í fyrsta prófið

31 dagur í annað prófið

38 dagar í þriðja og síðasta prófið og......

40 dagar í Svíþjóð og jólafríið!!! já mín er sko byrjuð að telja niður!!!















Verð að viðurkenna það að prófkvíðinn er farin að gera vart við sig og eins og alltaf er maður að drukkna í verkefna vinnu svona í lok annarinnar!!! Það lítur ekki út fyrir að ég sé að fara að eiga mikið líf fram að fríinu en það er í góðu lagi þar sem að það er ekki svo langt í að þetta verði endanlega búið!!!

Það var æðislegt að hitta Snædísi um helgina og við fórum og fengum okkur frábæran mat á La Primavera á laugardagskvöldið!!! Eftir það kom Embla að hitta okkur og við skelltum okkur á pöbbarölt en entumst ekkert alltof lengi sökum mikillar kokteildrykkju, híhí!!! En það var rosa gaman hjá okkur skvísunum og það verður æðislegt að eyða áramótunum í Köben með Boggu og Snædísi!!!

Svo er það bara stóra spurningin, hvað geri ég eftir áramót??? Það er enn allt óráðið en ég er eiginlega ákveðin í því að skrá mig allavega í einhverja tvo kúrsa og sjá svo bara til hvernig þetta fer allt saman, já eins og ég er komin með mikinn skólaleiða þá get ég ekki hugsað mér að fara bara alveg í frí, heheeh!!!

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Veiveiveiveivei!!!!

Snæda sæta er að koma í heimsókn um helgina!!! Skvísan kemur á klakann á laugardaginn og til þess að halda upp á það er ég búin að panta borð fyrir okkur á La Primavera þar sem að við ætlum að láta dekra aðeins við okkur áður en við kíkjum á næturlíf bæjarins!!! Helgin sem átti að fara í rólegheit verður sem sagt aðeins annasamari en ég hafði gert ráð fyrir en ég held að það sé nú í lagi svona endrum eins, enda er ég gjörsamlega búin að læra yfir mig og þarf smá "BREAK" og nett kæruleysi!!!

fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Vá hvað ég er komin með mikinn skólaleiða!!! Þetta er bara engu lagi líkt!!! Eina huggunin er sú að það eru nú bara tveir mánuðir eftir!!! Vá hvað ég ætla að halda roooosalegt partý þegar þetta er búið!!! Þá verður sko allt kolvitlaust!!! Er að fara í próf á morgun og er gjörsamlega búin að keyra mig út á vinnu og lærdómi þessa vikuna, held að ég sé búin að vera að fá 4 tíma svefn á nóttu, enda er ég að leka niður úr þreytu!!! Það verður svo æðislegt að komast út í frí um jólin og slaka almennilega á!!! Ég er farin að hlakka ekkert smá mikið til og get ekki beðið eftir að knúsa yndislegu systrabörnin mín enda eru þau sætust í heimi!!!!














Helgin er frekar óráðin í augnablikinu!!! Meirihluti hennar fer reyndar í að hjálpa mömmu að flytja en svo er ég boðin í þrítugsafmæli til Ægis frænda á laugardagskvöldið og ætla að skella mér þangað ef að ég næ einhverjum af ykkur skvísunum með mér!!! Jæja próf á morgun, verð að halda áfram, mússí mússss
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni