sunnudagur, febrúar 26, 2006

Núna er Pási kominn í mig, held ég sé barasta að tapa mér!!!! Búin að vera heima alla helgina að undirbúa mig fyrir þessa ritgerð, bara búin að lesa en ekkert byrjuð að skrifa, er e-ð svo andlaus!!! Anyways þá blasti við mér þessi stærðarinnar auglýsing á baksíðu Fréttablaðsins í morgun þar sem verið var að auglýsa ódýrar ferðir með Iceland Express og núna er ég alveg að tapa mér!!! Langar svo að skella mér út næstu helgi!!! Í tómu tjóni hérna, hehe!!! Sko, það er afmæli hjá Chris á laugardaginn og leaving partýið hans Lee, en hann er að fara að flytja til Ástralíu!!! En aftur á móti á þetta alltaf eftir að kosta einhvern pening og ég er að fara þangað í sumar hvort sem er!!! Á svona stundum vildi ég að ég væri bara að vinna, þá ætti ég nógan pening og þetta væri ekki neitt mál, eða þá bara að ég væri ennþá úti!!! Þoli ekki þegar það kemur svona djöfsi í mig, heheheeh, hvað á ég að gera???? Vera kærulaus og skella mér út, eða vera samviskusöm og spara??? That is the BIG question!!! Kemur í ljós!!!

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Þá er fyrsta brúðkaups boðskortið komið í hús!!! Lítur út fyrir að ég sé að fara í allavegna 3 brúðkaup í ár. Eitt hérna heima í apríl, eitt i Kaupmannahöfn í júlí og eitt í London í byrjun september!!! Það er líka bara eins gott þar sem að ég keypti æðislegan kjól síðustu helgi, en hann passar nú ekki við öll tilefni, mesti brúðkaupskjóll sem ég hef nokkru sinni séð, hehe!!! Það verður voða gaman að skella sér út í þessi brúðkaup, svo gaman að sjá hvernig brúðkaup eru í öðrum löndum. Fórum í brúðkaupið hjá Chris og Gigi til Rómar sumarið 2003 og það var nú eitt það stórkostlegasta sem ég hef upplifað!!! Þvilík fegurð, giftu sig í kirkjunni hjá Colosseum og svo var veislan haldin á svakalegu herrasetri þar sem boðið var upp á 7 rétta kvöldverð, úff, og dansað fram eftir nóttu!!! Þetta er líka svo góð afsökun að skella sér til útlanda, held að við verðum bara langa helgi í Köben en ætlum líklega að vera 2-3 vikur í London og fara bæði á V- og Reading Festivölin þar sem að við erum búnar að redda okkur back-stage miðum, jíííhha!!!! Núna er bara að bíða sumarsins!!!

Jæja lítið að frétta héðan nema nóg að gera í skólanum eins og vanalega. Þarf að skila ritgerð í næstu viku og er með nokkurra blaðsíðna hefti með orðum sem ekki má nota í ritgerðinni. Ef ég nota t.d. orðið "endurspegla" fæ ég ekkert fyrir ritgerðina, hahahah!!! Er ekki alveg að skilja þennan kennara en það er nú eins gott að lesa þetta hefti yfir vel og vandlega áður en ég skrifa þessa blessuðu ritgerð!!! Ætla því að eiga rólega helgi og jafnvel passa litlu ungana hennar systur minnar á laugardaginn og svo var ég að vonast til að fá að fara með Eddu á hestbak um helgina!!! Langt síðan ég hef farið á bak og mér langar líka svo að vera alvöru kúrekastelpa, íííhhhaaaa!!!!!

mánudagur, febrúar 20, 2006

Úff hvað það var gaman í Eurovision partýinu hjá Hildi á laugardaginn!!! Ása var búin að skipuleggja Eurovision drykkjuleik sem fór þannig fram að að allir voru látnir velja þau lög sem þeir héldu að yrðu í efstu þrem sætunum og það lag sem þeim fannst verst. Allir tóku svo Gajol staup þegar versta og besta lagið þeirra var spilað!!! Í lokin stóðu uppi 3 sigurvegarar, ég, Hildur og Fríða og fengum við afganginn af Gajol flöskunni sem við svo deildum með restinni af hópnum!!! Æsingurinn var það mikill þegar að úrslit leiksins voru tilkynnt að greyið Embla endaði á gólfinu, hahah!!! Að keppni lokinni var síðan tónlist spiluð og dansað þar til tími var kominn að fara í bæinn!!! Skelltum okkur á Vegamót og í lokin kíktum við svo nokkrar á KB en þar var ekki mikið stuð svo að haldið var heim!!!
MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!!!

föstudagur, febrúar 17, 2006

ÍÍÍÍÍÍÍhaaaaa........... Arriba Arriba Andele Andele!!!!! Þvílíkur metnaður hjá Hildi og Boggu, bara komnar í gírinn, tilbúnar í geimið og ennþá heill sólarhringur í partýið!!!! Við hinar þurfum nú heldur betur að taka okkur á og verða okkur úti um oufit, annað gengur barasta ekki, hehe!!! Er svo spennt núna, held ég sé barasta að tapa mér, það þarf greinlega lítið til þess að gleðja þessa sál!!!! Hlakka til að sjá ykkur á morgun kolvitlausar i rífandi.........!!!!!

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Var að koma úr minni annari bíóferð á einni viku og þá er nú mikið sagt þar sem að ég fer yfirleitt bara í bíó tvisvar á ári!!! Fór að sjá Memoirs of a Geisha! Þetta var ekkert smá flott mynd!!! Var búin að lesa bókina þannig að ég var nú ekkert að búast við svo miklu, en hún kom skemmtilega á óvart og búningarnir voru hreint út sagt æðislegir!!!
Helgin er alveg að skella á og febrúar pásan mín er að verða að engu!!! Búið að skipuleggja svaka Eurovision Mexico Fiesta þar sem boðið verður upp á fajitas og Corona og hver veit nema öllu verði síðan skolað niður með smá tequila!!! Eftir matinn verður síðan stiginn trylltur dans við Silvíu Nótt!!! Nú þarf ég bara að verða mér úti um sombrero, poncho og gerviskegg og þá er ég tilbúin í game-ið!!! Skora á smá metnað frá ykkur hinum líka, hahha!!!

mánudagur, febrúar 13, 2006

Fyrsta prófi annarinnar lokið og það gekk bara mjög vel!!! Þar með er önnin byrjuð á fullu og nóg af verkefnum og prófum framundan. Það þýðir væntanlega að maður þurfi að fara að róa sig aðeins en það reynist erfitt þar sem að það er alltaf e-ð að gerast hjá okkur stelpunum og erfitt að koma sér undan því!!! Annars eru myndirnar frá strákunum loksins komnar!!! Þar má sjá hversu gaman var hjá okkur síðustu helgi!!!
ENJOY!!!!!!!

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Ja hérna!!!! Það er greinlega fullt tungl þar sem að ég hef sjaldan upplifað annað eins kvöld!!! Er búin að vera að læra fyrir próf í dag og ákvað að verðlauna sjálfa mig í kvöld með því að fara í bíó með Eddu og Sigrúnu. Við fórum á Walk the line, Johnny Cash myndina og hún er alveg frábær!!! Eftir myndina vorum við í svo miklu stuði og ákváðum að kíkja aðeins á næturlífið edrú. Byrjuðum á því að keyra niður Laugaveginn og þar var gjörsamlega troðið. Eftir smá umhugsun ákváðum við að leggja bílnum og fara inn á einhvern stað. Ég fór að leiðbeina Eddu um hvað væri nú best að leggja, taldi mig sko vita hvar öruggustu stæði bæjarins væru!!! Leiðbeindi henni að bílastæðinu á Grettisgötu bak við Skífuna. Þegar að við komum þangað lögðum við bílnum og ég var að lýsa fyrir Eddu hversu örugg þessi stæði væru, alveg upplýst og í íbúðarhverfi.















Ég var rétt búin að sleppa orðinu þegar að við heyrum brothljóð og lítum í áttina og sjáum að það er verið að mölva glugga innan frá í einu húsinu þarna og út stökkva nokkrir hettuklæddir gaurar!!! Ég byrjaði að paneka, en varð ekki almennilega hrædd fyrr en ég sá að einn þeirra var að sveifla byssu á fullu!!! Reif í stelpurnar og við drulluðum okkur inn í bíl áður en að við sæum þá almennilega og að þeir sæu okkur því að við vorum sko ekki tilbúnar að blanda okkur í þetta!!! Þegar við töldum okkur vera óhætt brunuðum við svo í burtu í hálfgerðu sjokki!!! Tókum einn annan rúnt niður Laugaveginn til að leita að stæði og sáum þá fullt af lögreglubílum og mönnum við húsið þar sem að þetta gerðist, úff!!!!!
Eftir þetta væga taugaáfall fundum við loksins stæði og skelltum okkur aðeins inn á Óliver, töldum að þar sem að þetta væri með stærri stöðum bæjarins þá væri nóg pláss fyrir svona edrú mýslur eins og okkur, BIG MISTAKE!!! Það var svo troðið þarna inni og allir svo ölvaðir að maður gat varla komist áfram um nokkur hænufet!!! Við drifum okkur bara aftur út og fórum á Kaffi Kúltúra. Þar hittum við Dodda og félaga og fengum okkur sæti hjá þeim að spjalla. Undir lokin svona bara til þess að toppa kvöldið mættu tveir ólíkustu menn ever saman inn á staðinn, þetta voru engir aðrir en Bobby Fisher og Raul einkaþjálfari. Upphófust því miklar vangaveltur hjá okkur um hvað í veröldinni þessir tveir menn ættu sameiginlegt, en þeirri spurningu er enn ósvarað!!! Þetta kvöld sem átti að vera svo rólegt endaði sem sagt í því að vera mesta hasar kvöld sem ég hef upplifað í langan tíma!!!

föstudagur, febrúar 10, 2006

Vá hvað ég elska Little Britain!!!! Ég gjörsamlega grenja úr hlátri yfir þessum þáttum!!! Er búin að vera að horfa á þætti úr þriðju seríunni á nóttunni þegar að ég get ekki sofið og ég sver það þetta eru fyndnustu þættir í heimi!!!! Uppáhaldin mín eru Vicky Pollard sem er mesti chav ever... og Andy & Lou sem eru bara snillingar!!! Þarf að fara að þrýsta á hann bróður minn að ná í fleiri þætti þar sem að ég get ekki sofið!!! Annars er bara róleg helgi framundan þar sem að ég þarf að læra fyrir próf, kannski að maður skelli sér bara í bíó! Langar að sjá svo margar myndir sem eru í bíó núna t.d. Johnny Cash myndina og Pride and Prejudise!!!

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Jæja helgin búin og þetta var ekkert smá mikil keyrsla!!!!! Byrjuðum fimmtudagskvöldið á því að ná í Ben, Lee og Dassie út á flugvöll og fórum svo beint á pöbbarölt! Enduðum síðan heima hjá mér ásamt Ægi frænda í smá eftirá partý langt frameftir!!! Á föstudaginn sýndum við svo strákunum borgina og þeir skelltu sér í sund. Seinna um kvöldið náði ég svo í Chris og Andy út á flugvöll og við fórum í partý til mín! Þaðan lá leiðin beint í bæinn á Óliver og svo Kaffibarinn. Ekkert smá skemmtilegt kvöld!!! Á laugardaginn skelltum við okkur svo í Bláa Lónið og um kvöldið hélt Bogga dúndur partý!!! Þaðan fórum við á Kaffibarinn og vorum þar til lokunar. Á sunnudaginn var síðan skellt sér á Gullfoss og Geysir og að lokum í Humarveislu við Fjöruborðið!!! Mánudaginn héldu drengirnir síðan af landi brott sælir og sáttir og geta ekki beðið eftir að koma aftur í sumar!!! Er enn að bíða eftir myndum frá strákunum en set þær inn um leið og ég get!!!!


fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Jeminn hvað ég er spennt!!! Helmingur strákanna er væntanlegur til landsins á morgun, fimmtudag og restin á föstudag!!!! Þetta verður svaðaleg helgi!!!! Planið er orðir frekar stíft en ég er viss um að þetta gangi allt saman upp, hehe. Á föstudag verður kíkt á helstu staði bæjarins og jafnvel þá súru líka, bara svona til þess að sýna drengjunum alla hnakkana, svo á laugardag verður dúndur partý og KB eftir það!!! Vonandi verð ég búin að redda mér myndavél fyrir helgina til þess að festa atburðina á filmu, haha!!!!! Vonast til að sjá sem flest ykkar i góðu stuði um helgina!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni