sunnudagur, september 30, 2007

Alveg finnst mér magnað hvað það er hægt að missa af sápuóperu í fleiri fleiri ár og detta svo alveg aftur inn í hana með því að horfa aðeins á 3 þætti!!!! Hahaha, já ég er dottin aftur inn í Neighbours eftir að hafa horft aðeins á 3 þætti á hlaupabrettinu!!! Fína hlaupaprógrammið er yfirleitt að horfa á Neighbours og skipta svo beint yfir á Dr. Phil þannig að eftir þessa tvo þætti er komin ágætis brennsla!!! Í dag sá ég alla Dr. Phil þættina því það var verið að endursýna þá og á morgun get ég síðan náð Neighbours þáttunum sem ég missti af í vikunni, algjör snilld, haha!!! Það væri nú samt mesta snilldin ef að þeir sýndu Grey's anatomy svona um helgar, því að ég elska þá þætti en tími engan vegin að vera með áskrift bara fyrir þá!!!













Í gær var fyrsta próf annarinnar og það gekk bara svona þrusuvel!!! Helgin er síðan bara búin að fara í undirbúning á fyrirlestri, ræktina, heimilisþrif og matarboð hjá Sigrúnu vinkonu í kvöld þannig að helgin er bara búin að vera róleg og þæginleg so far!!! Verð nú samt að viðurkenna það að Gremlings er farinn að gera aðeins vart við sig þannig að ég mun líklega reyna að draga ykkur skvísurnar á smá fimmtudagsskrall í vikunni!!!

fimmtudagur, september 27, 2007

Jæja, skammdegið bara skollið á og góða veðrið bara farið af landi brott!!! Ekki líst mér nú beint á hvernig þessi veturinn byrjar!!! Oh well, ekki mikið við því að gera!!! En ég er nú búin að finna góða lausn til þess að detta ekki í skammdegisþunglyndi!!! Þar sem að ég geri lítið þessa dagana nema vinna og læra þá ákvað ég bara að gerast ræktarmeðlimur með öllu hinu hipp og kúl liðinu og það er bara svona þrusu skemmtilegt!!! Búin að fara nánast á hverjum degi síðan ég "joinaði" og finnst þetta bara svona rosalega skemmtilegt!!! Who would have thought, haha!!! Vona bara að ég endi nú ekki eins og þessi skvísa, hahahaah, þó ég efist reyndar stórlega um það!!!














Svo er það líka stórmerkilegt að ég er barasta ekki búin að fara út á lífið síðan á Menningarnótt!!! Þetta er nú orðin ansi góð pása hjá mér!!! Fór í brúðkaupið hjá Emblu og Danna af sjálfsögðu en ég hef ekkert farið niður í bæ síðan í ágúst og það er heldur ekki á dagskrá hjá mér á næstunni, núna er það bara skóli, vinna og ræktin, tíhí!!! En það er samt allstór helgi framundan því að helgina 12. október eru útgáfutónleikar Sprengjuhallarinnar sem að maður lætur sig af sjálfsögðu ekki vanta á og er mæting snemma daginn eftir á árlega grifflufögnuðinn!!! Jiii ég er svo hrikalega spennt að komast að því hvert þemað er í ár og get ekki beðið eftir því að dularfullu e-mailin með smá "hintum" fari að berast!!! Jæja held að ég sé búin að röfla nóg um ekkert, best að snúa sér aftur að bókunum!!! Mússí mússssss

miðvikudagur, september 19, 2007

Laugardaginn 8. september giftu Embla og Danni sig í Skálholti!!! Athöfnin var yndisleg og múgur og margmenni mætt á staðinn til að sjá þau stíga sín fyrstu skref sem hjón!!!














Veislan var haldin á Þingvöllum og þar tók á móti okkur trúbadorinn Jójó sem söng og spilaði við fordrykkinn!!! Eftir það mættu brúðhjónin á staðin og þá tók við borðhald og mörg frábær skemmtiatriði!!! Ég, Bogga og Ásdís voru nú frekar stressaðar þar sem að við vorum að fara að halda ræðu og taka þátt í hópsöngnum með saumó svo við skelltum nokkrum drykkjum í okkur og drifum okkur svo upp á svið þar sem allt gekk áfallalaust fyrir sig og var bara sjúklega skemmtilegt!!!














Eftir matinn var síðan aðeins farið að hitna í kolunum og fólk farið að setja sig í alls konar stellingar og pósa fyrir myndavélarnar!!! Brúðarkakan var borin fram og flottari tertu hef ég sjaldan séð!!! Alveg í anda brúðkaupsins sem var eins íslenskt og það gerist!!!














Fljótlega mætti svo Sprengjuhöllin á svið sem var algjör snilld. Embla og Danni tóku brúðardansinn og fljótlega fylgdi restin á eftir þeim á dansgólfið í svaðalegum ham!!!














Brúðhjónin sveifluðust síðan út um allt dansgólf restina af kvöldinu og það sama má segja um restina sem skrapp reyndar alltaf inn á milli á barinn til að toppa upp!!! Í lokin voru margir farnir í bæinn nema við sem gistum á Þingvöllum og eftir að hafa fengið okkur einn fyrir svefninn var haldið í háttinn eftir frábært kvöld!!!














Daginn eftir skelltu margir sér svo í göngu á Þingvöllum undir leiðsögn Hörpu og aðrir fóru í sund og var fólk því frískt og endurnært þrátt fyrir hamagang kvöldið áður!!!














Myndir eru komnar á myndasíðuna mína!!!

miðvikudagur, september 12, 2007

Smá "sneak preview" af Emblu hinni gullfallegu brúður fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að ég reddi myndum!!! Reyni að ganga frá þessu sem fyrst svo að þið getið skoðað og lesið um brúðkaupið!!!

fimmtudagur, september 06, 2007

Yes, yes, yes!!!! Haldið þið að mín sé ekki bara að fara til útlanda um jólin, jíhaaaa!!!! Ó já búin að bóka miðann og læti!!! Ég flýg sem sagt út 22. des ásamt mömmu og brósa og er förinni heitið til Stokkhólms!!! Þaðan tökum við bílaleigubíl eða lest til Skövde til Hrefnu og verðum þar yfir hátíðarnar!!! Eftir það eða um 27-28. des ætla ég síðan að skella mér til Köben og eyða áramótunum þar í þrusustuði með vinkonunum!!! Ég kem síðan aftur á klakann 2. janúar á nýju ári tilbúin í slaginn!!! Oh þetta verður alveg æðislegt og mjög velkomin breyting á hátíðarhaldinu, enda ekki hægt að halda jól án krílanna hennar systur minnar!!!

Annars styttist óðum í brúðkaup Emblu og Danna og nú er ég farin að vera alveg hrikalega spennt!!! Ég er þvílíkt búin að vera að spara mig fyrir brúðkaupið og ekkert búin að fara út heillengi!!! Ætla reyndar að kíkja aðeins út annað kvöld í léttan fimmtudagsöl svona í tilefni þess að Bogga er komin á klakann!!! En svo er það bara bjútý trítment dauðans fyrir brúðkaupið!!! Oh hvað það verður hrikalega gaman!!! Set inn myndir strax eftir helgi!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni