Þá er farið að hausta eftir eitt besta sumar sem ég hef upplifað hérlendis!!! Já það er sko ekki mikið hægt að kvarta yfir veðrinu í ár!!! Skólinn byrjar í næstu viku og ég get ekki annað sagt en ég sé orðin svaka spennt að byrja síðustu önnina mína!!! En þá tekur líka við kvíðinn um framhaldið...held að ég sé með allavega 3 námsleiðir í huga í sambandi við masters námið og ég get engan vegin ákveðið hverja þeirra ég á að taka...en það er bara seinni tíma vandamál!!! Ætla allavega að taka mér frí eftir áramót, vinna, eiga pening til tilbreytingar og njóta lífsins!!! Jiii hvað ég er samt fegin að vera búin með BA ritgerðina, þvílík snilld að hafa klárað hana einni önn fyrir útskrift!!!

Annars er bara ósköp lítið að frétta, búin að vera frekar róleg undanfarið!!! Brúðkaup Ingu Birnu og Helga var haldið 11. ágúst síðastliðinn og það var bara gargandi snilld!!! Hef sjaldan skemmt mér jafn vel í brúðkaupi!!! Ætlaði að setja inn myndir frá veislunni í gærkveldi en einhverra hluta vegna þá var diskurinn sem þær voru brenndar á gallaður svo ég þarf að láta brenna þær aftur fyrir mig!!! Ég kíkti svo út á menningarnótt en fékk e-ð ógeðis fljúgandi glerbrot í tánna á mér og hef ekki hætt mér niður í bæ síðan þá!! Já það voru einhverjir snaróðir unglingar að smalla glösum á Lækjartorgi og ég var svo einstaklega óheppin að fá eitt stykki glas fljúgandi á löppina á mér, spurning hvort ég sendi þeim ekki bara reikninginn fyrir þrifin á blóðinu úr skónum mínum, hehe!!!
Framundan er síðan brúðkaup Emblu og Danna þarnæstu helgi og þangað til ætla ég bara að taka lífinu með ró!!! Sú veisla verður haldin á Þingvöllum og ætlum við margar af stelpunum að gista á hótelinu um nóttina svo það verður eflaust rosa stuð!!! Bogga, "my partner in crime", kemur líka til landsins í tilefni brúðkaupsins þannig að þá má sko búast við einhverju rooooosalegu!!!