fimmtudagur, maí 24, 2007

4 vikur í Köben og Barcelona!!!

Ó já það styttist heldur betur í þetta!!! Rugl hvað vikurnar líða hratt þegar að það er farið að sumra!!! Búin að fá úr báðum prófunum sem ég fór í og gekk vel í báðum svo ég er í skýjunum!!! Núna er ég bara nánast komin í sumarfrí fyrir utan smá fínpússingar, jíhaaa!!! Er farin að hlakka ekkert smá til að fara út og hitta Gremlings og Snædu í Köben og svo alla London vinina í Barcelona, þetta verður e-ð allsvaðalegt!!!














Núna á föstudaginn ætla ég að skella mér upp á Skaga í eina nótt með henni Guðrúnu Dúfu!!! Foreldrar hennar eru erlendis og við ætlum því að skella okkur þangað, grilla, opna rauðvín og fara í pottinn!!! Nice!!! Síðan ætla ég bara að njóta helgarinnar og hver veit nema maður skreppi út með stelpunum á laugardags eða sunnudagskvöld!!!

laugardagur, maí 19, 2007

Sól sól skín á mig!!!!

Oh það er búið að vera æðislegt veður undanfarið!!! Maður er bara kominn með lit af því að sitja niðri á Austurvelli, ekki slæmt miðað við að þetta er nú einu sinni Ísland og það er nú bara maí!!!

Allt gott að frétta héðan, bara búin að vera að koma mér inn í vinnu rútínuna aftur og snúa sólarhringnum við!!! Fór í vinnupartý og tjútt á miðvikudaginn og það var alveg hrikalega gaman!!! Var reyndar svo ofboðslega þreytt eftir prófin að ég drakk ekkert sérlega mikið en það er bara fínt því þá fékk ég að sjá hina hliðina á liðinu, hehe!! Þessi helgin er síðan bara búin að vera ósköp róleg!!! Var heima að dúlla mér í gær og er núna bara í miðjum klíðum að þrífa íbúðina!!! Þegar ég er búin að því ætla ég að verðlauna sjálfa mig með því að skella mér niður á Austurvöll í góða veðrinu og fá mér einn öl!!!

Vona að þið eigið öll sömul góða helgi!!!



mánudagur, maí 14, 2007

Jíííhaaaaaaaaa!!!!! Ég er búin í prófum!!!!!!

Loksins, loksins, loksins!!! Nú þarf ég bara að klára að fínpússa ritgerðina og þá er ég bara komin í sumarfrí!!! Úff ekki seinna vænna enda er ég ekki búin að eiga líf undanfarna mánuði!!!

Fyrsta djammið í heila eílífð á miðvikudagin en það er vinnudjamm og frí daginn eftir svo ég á von á því að það verði e-ð all svakalegt, híhí!!!

Hérna er smá húmor í tilefni dagsins!!! Byrjar reyndar ekki að vera fyndið fyrr en eftir smá stund en er algjör húmor að mínu mati....og by the way, ég er ekki að gera grín að þeim, þeir eru að því sjálfir sem er snilldin á bak við þetta!!!

mánudagur, maí 07, 2007

Þyngd: við skulum bara segja að nammiátið í prófunum hafi sitt að segja;
Áfengis einingar: too many to count...yeah right I wish;
Kaloríur: sjúklega margar en hver er telja;
Sigarettur: að minnsta kosti 20.

Ohhh já það er þessi tími ársins aftur!!! Einn dagur í the dreaded event!!! Á fullu í prófum, ósofin, bólgin af nammiáti með bólu á nefinu!!! Life couldn't get better!!! Ég sem hélt fyrir ári að á þessum tíma væri ég á fullu í ræktinni, búin að vera svo samviskusöm að læra fyrir prófin að ég væri á grænni grein og búinn að finna minn eina sanna Mr. Darcy!!! Þess í stað sit ég ein heima með sárt ennið, ósofin og sjúskuð!!! All by myself....














Nah.... ekki voruð þið að trúa þessu!!! Life couldn't be any better!!! Kláraði fyrsta prófið í dag og á bara núna eitt eftir!!! Ritgerðin er alveg að verða búin og sumarfríið er rétt handan við hornið!!! Byrjuð á fullu í ræktinni og búin að halda mig frá nammi og gosi að mestu leyti í prófunum, would you believe it!!! Má vera að ég sé ósofin eftir prófið í dag en ég er allavega ekki bólgin af nammiáti með bólu á nefinu, haha!!! Það byrjar nýtt ár hjá mér á morgun og ég er alveg sannfærð um það að þetta verði árið sem að ég hitt minn Mr. Darcy!!! Ó já lífið gæti ekki verið betra!!! Jú náttúrulega ef að ég myndi vinna í lottó, en við skulum bara að taka eitt fyrir í einu ;-)

föstudagur, maí 04, 2007

I said what what!!!!

Þetta er tær snilld!!!


eXTReMe Tracker Á sí­ðunni