fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Ohhhhh hvað útskriftardagurinn minn var æðislegur!!! Vil bara segja enn og aftur: TAKK FYRIR MIG!!!!

Er komin með einhverjar myndir en ætla að bíða með að setja þær inn þangað til að ég fæ restina á morgun eða hinn!!! Þá segi ég líka betur frá þessum yndislega degi og kvöldi!!!

Vikan er vægast sagt búin að vera mjööööög "busy" og ég er alveg búin á því!!! En á morgun uppsker maður fyrir erfiði síðustu 8 mánuða því að klukkan 17.00 opnar nýja heimasíðan okkar og nýju páskaeggin koma síðan í búðir á mánudaginn, vei vei vei!!! Hvet alla til að kíkja á síðuna á morgun, ég er ekkert smá stolt enda er mér farið að líða eins og þetta sé litla barnið mitt eftir 8 mánaða meðgöngu, heheh!!!

Annars fór ég í gær að kíkja á nýju litlu "frænku" mína og sú dafnar aldeilis vel!!! Hún er bara algjört æði og mér langaði bara að stela henni heim með mér þegar ég fór, hihi!!!














Á morgun er sem sagt formleg opnun síðunnar en svo á laugardaginn ætlum við í vinnunni að skella okkur út að borða á Tapas barinn og í framhaldi af því á tjúttið!!! Ég er ekkert smá spennt enda mjöööög langt síðan við gerðum eitthvað saman síðast!!!

Síðan styttist bara í að Bogga ofur gremlings komi til landsins og ég bíð spennt!!! Hlakka svooo til að sjá hana enda sakna ég hennar endalaust!!! Er meira að segja búin að fjárfesta í ferð til Köben í maí!!! Ég og Stína ætlum að eyða þrítugsafmælisdeginum mínum í góðu stuði í Köben ásamt Boggu, Snædísi og fleiri skemmtilegu fólki, vei vei vei!!!!!!

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Vóóó hvað maður er eitthvað busy í félagslífinu þessa dagana!!! Tókst að halda mig alveg frá djamminu í desember og rétt kíkti einu sinni út í janúar en núna er nýr mánuður og "social calanderið" mitt bara að verða stútfullt!!! I love it!!!

Á laugardaginn er þrítugsafmælið hennar Signýjar skvísu og þá má búast við miklu sprelli og fjöri!!! Laugardaginn þar á eftir, eða þann 23. febrúar er síðan útskriftin mín, vei vei vei!!! Loksins er komið að hinum langþráða degi og vááááá hvað ég ætla að njóta dagsins...og kvöldsins, hehe!!! Helgina þar á eftir er síðan vinnu djamm og ég get ekki beðið enda laaaaangt síðan við gerðum eitthvað saman síðast!!!















Nú fara næstu dagar bara í að finna mér útskriftar "outfit" sem að á eftir að vera martröð en vonandi finn ég það sem ég er að leita að þó svo að ég hafi ekki hugmynd um hvað það er!!!

Sem sagt nóg að gerast framundan og vetrarblúsinn eiginlega alveg farinn úr mér, vúhúúúú!!!

Later!!!

mánudagur, febrúar 11, 2008

Baby boom 2008!!!

Allt að gerast!!! Von á allavega 6 börnun í saumaklúbbshópinn þetta árið frá 5 skvísum!!! Ekki nóg með að ég sé sú eina karlmannslausa af 11 stúlkna hóp heldur er ég farin að halda að ég verði fljótlega sú eina barnlausa!!! Haha allavega nóg að gera hjá mér í frænku hlutverkinu í nánustu framtíð!!!

Tók þessa mynd síðasta fimmtudag í afmælis saumó hjá Sædísi en nú þegar eru þrjár í hópnum, Inga Birna, Halla og Sædís, orðnar þrítugar, vúhúúúú!!! Til hamingju með það stelpur!!!

Á þessari stórgæsilegu mynd þar sem er ekkert verið að spara "pósurnar" má sjá Hildi ( á að eiga í apríl), Addý (maí), Inga Birna (júlí) og Ásdís með tvíbbana (ágúst)!!! Inn á myndina vantar síðan mesta Gremlingsinn hana Boggu sem á að eiga í ágúst!!!

fimmtudagur, febrúar 07, 2008

Segið svo að maður kunni ekki að hafa húmor fyrir sjálfum sér, hehe!!! Í dag kom kötturinn í mér út úr skápnum!!! Þar sem að ég vissi að það yrði lítill vinnufriður í dag ákvað ég nú barasta að taka þátt í gamninu og sé sko alls ekki eftir því!!! Eitt er þó víst, ég mun vera mjög glöð ef ég þarf aldrei og þá meina ég aldrei aftur að hlusta á Bjarnastaðar beljurnar!!! Úff ég missi bara löngunina til að lifa þegar ég heyri þetta lag!!!
















Anyways....er eitthvað plan fyrir helgina??? Mér er farið að langa pínu lítið til að viðra 50 þúsund króna Hugo Boss stígvélin sem ég keypti mér í Köln, hehe!!! Verið í bandi ef að það er eitthvað í gangi!!! xxx

sunnudagur, febrúar 03, 2008

Jæja ég náði að kaupa hleðslutæki fyrir myndavélina mína svo að núna loksins koma myndirnar inn frá því um jólin!!!

Við flugum sem sagt út 22. desember og lentum í Stokkhólmi þar sem að var verslað smávegis áður en haldið var til Skövde með lest!!! Þar var tekið á móti okkur með fagnaðarlátum og allir hrikalega glaðir!!! Á Þorláksmessu kíktum við í bæinn og nutum dagsins öll saman!!!














Aðfangadagur byrjaði síðan á möndlugraut í hádeginu og var það Grímur Egill sem fékk möndlugjöfina í ár!!! Síðan var bara slakað á þar til um kvöldið og eftir æðislegan mat tók við æsingurinn við að opna pakkana!!! Ragnhildur var sannfærð um að hún ætti sko alla pakkana þannig að maður fékk ansi mikla hjálp við að opna þá, hehe!!! Jóladagur og annar í jólum fóru síðan bara í afslappelsi og ofát enda þurfti maður alveg á því að halda eftir allt prófa og jóla stressið!!!














Á föstudeginum tók ég síðan lestina til Kaupmannahafnar og þessa sömu helgi komu Hildur og Jens einnig til Köben þannig að við eyddum henni öll saman heima hjá Boggu og Martin!!! Martin vippaði upp nokkrum veisluréttum og svo kíktum við aðeins á kaffihús í hverfinu!!! Á laugardeginum skelltum við stelpurnar okkur svo að hitta Snædísi og Sigrúnu og þar á eftir á smá tjútt á öllum VIP stöðum bæjarins, gvuð má vita hvernig við komumst inn en einhvern vegin fórum við að því, hehe!!!














Gamlárskvöldi eyddum við svo heima hjá Christinu og Dennis í góðra vina hóp!!! Fengum æðislegt hreindýrakjöt í matinn og frábærann eftirrétt sem Martin sá um og svo var horft á flugeldana!!! Kom mér reyndar mjög á óvart hvað það var skotið mikið upp þarna!!! Ég hoppaði inn í nýárið að danskri hefð og síðan um þrjúleytið var haldið heim enda þreyta farin að síga í liðið!!! Tveimur dögum síðar flaug ég síðan heim mjög sátt við fríið mitt og ég náði að hvílast mjög vel enda var lítið um djamm miðað við fyrri ár, hehe!!!

Nýjar myndir komnar á myndasíðuna mína!!!

laugardagur, febrúar 02, 2008

Snúlla Sigrúnar- og Halldórsdóttir!!!

Hún er alveg yndisleg litla nýja "frænka" mín og ég var sko næstum því búin að stela henni með mér heim í dag!!! Var bara að sjá hana í fyrsta skiptið þar sem að ég er búin að vera úti og vá hvað ég er kolfallin fyrir henni!!! Það er sko alveg á hreinu að ég á eftir að gjörspilla henni!!! Innilega til hamingju litla fjölskylda!!! Mússí mússss xxx



eXTReMe Tracker Á sí­ðunni