Jæja ég náði að kaupa hleðslutæki fyrir myndavélina mína svo að núna loksins koma myndirnar inn frá því um jólin!!!
Við flugum sem sagt út 22. desember og lentum í Stokkhólmi þar sem að var verslað smávegis áður en haldið var til Skövde með lest!!! Þar var tekið á móti okkur með fagnaðarlátum og allir hrikalega glaðir!!! Á Þorláksmessu kíktum við í bæinn og nutum dagsins öll saman!!!

Aðfangadagur byrjaði síðan á möndlugraut í hádeginu og var það Grímur Egill sem fékk möndlugjöfina í ár!!! Síðan var bara slakað á þar til um kvöldið og eftir æðislegan mat tók við æsingurinn við að opna pakkana!!! Ragnhildur var sannfærð um að hún ætti sko alla pakkana þannig að maður fékk ansi mikla hjálp við að opna þá, hehe!!! Jóladagur og annar í jólum fóru síðan bara í afslappelsi og ofát enda þurfti maður alveg á því að halda eftir allt prófa og jóla stressið!!!

Á föstudeginum tók ég síðan lestina til Kaupmannahafnar og þessa sömu helgi komu Hildur og Jens einnig til Köben þannig að við eyddum henni öll saman heima hjá Boggu og Martin!!! Martin vippaði upp nokkrum veisluréttum og svo kíktum við aðeins á kaffihús í hverfinu!!! Á laugardeginum skelltum við stelpurnar okkur svo að hitta Snædísi og Sigrúnu og þar á eftir á smá tjútt á öllum VIP stöðum bæjarins, gvuð má vita hvernig við komumst inn en einhvern vegin fórum við að því, hehe!!!

Gamlárskvöldi eyddum við svo heima hjá Christinu og Dennis í góðra vina hóp!!! Fengum æðislegt hreindýrakjöt í matinn og frábærann eftirrétt sem Martin sá um og svo var horft á flugeldana!!! Kom mér reyndar mjög á óvart hvað það var skotið mikið upp þarna!!! Ég hoppaði inn í nýárið að danskri hefð og síðan um þrjúleytið var haldið heim enda þreyta farin að síga í liðið!!! Tveimur dögum síðar flaug ég síðan heim mjög sátt við fríið mitt og ég náði að hvílast mjög vel enda var lítið um djamm miðað við fyrri ár, hehe!!!
Nýjar myndir komnar á myndasíðuna mína!!!

<< Home