fimmtudagur, janúar 25, 2007

Jæja ég kemst víst ekki upp með það lengur að vera gleraugnalaus!!! Hef alltaf verið löt að nota gleraugun mín en er búin að vera með hausverk í nánast 5 mánuði núna svo að ég skellti mér í sjónmælingu í dag!!! Viti menn, ég var bara með kolvitlaus gleraugu í fyrsta lagi og svo með brjálað sjónskekkju á báðum augum!!! Það lítur því út fyrir það að ég sé að fara að þurfa að ganga með gleraugu, búhú!!! Góði punkturinn við það samt sem áður er sá að ég er á leiðinni til London og þar mun ég pottþétt finna geggjuð gleraugu svo maður verður nú kannski bara gella með gleraugun, hihi!!!

Anyways off to London og Cologne!!! Skrifa allt um ferðina þegar ég kem til baka!!! Mússí músssssssss

fimmtudagur, janúar 18, 2007

London og Köln!!!

Þá fer að koma að fyrstu utanlandsferð ársins!!! Er reyndar með svolítið öðru sniði í þetta skiptið þar sem að þetta er vinnuferð og það verður mjög mikið að gera allan tímann!!! Stína fer með mér og við byrjum á því að fara til London næsta fimmtudag og förum á fund í Portsmouth á föstudeginum!!! Laugardagur verður bara rólegur og svo eldsnemma á sunnudagsmorgun förum við til Kölnar á ráðstefnu og verðum þar alveg fram á miðvikudag!!! Þar förum við á fullt af fundum og það verður pottþétt alveg nóg að skoða á sýningunni!!! Mikið verður gaman að sjá þetta!!!













Sem betur fer hef ég komið til Kölnar áður svo að ég veit nú nokkurn vegin hvar maður getur verslað og fengið sér sjúklega góðar steikur og þess háttar svo að ég get lóðsað Stínu um á kvöldin þegar við erum búnar á ráðstefnunni!!! Eins gott að búðirnar séu opnar lengi,híhí!!! Á miðvikudag fljúgum við svo aftur til London og komum heim fimmtudagskvöld viku eftir að við förum út!!! Ég er rosa spennt að fara þarna út og sjá alla tengiliðina sem ég tala reglulega við í vinnunni og þetta verður frábær reynsla!!! Verð líka að viðurkenna það að það verður frábært að komast aðeins í burtu út þessum kulda og skammdegi!!!

þriðjudagur, janúar 16, 2007

Jeminn einasti, þvílíkur janúar blús og gúrkutíð!!! Það er bara nákvæmlega ekki neitt að frétta og eiginlega minna en það!!! úfffffff, well skólinn er nú byrjaður þannig að vonandi fer nú að færast líf í þetta!!! Skrifa meira næst þegar það er e-ð fréttnæmt!!!

fimmtudagur, janúar 11, 2007

Systa heimtar nýtt blogg svo það er best að verða við óskum hennar!!! Búin að vera ósköp róleg vika enda skólinn ekki ennþá byrjaður!!! Fórum út að borða síðasta föstudag á La Prima Vera í tilefni afmælis pabba og fengum geðveikan mat!!! Eftir það fórum síðan ég, Hrefna, Gummi og Hólmar á skrall og mikið rosalega var þetta skemmtilegt kvöld!!!















Restin af helginni fór í afslöppun og að kveðja Hrefnu og fjölskyldu og síðan þá hefur vikan bara verið eins og allar aðrar vikur!!! Reyndar er Bogga snúður komin heim og það er eins gott að reyna að eyða sem mestum tíma með henni áður en hún flytur út!!! Helgin er að mestu leyti óplönuð en það er víst e-ð skrall í gangi annað kvöld!!! Já það er víst alltaf nóg að gerast!!! Svo byrjar skólinn aftur á mánudaginn og næsta vika fer líklega í það að púsla saman hvernig vinna og skóli fara saman þessa önnina, hehe!!! Jæja hef nákvæmlega ekkert merkilegra að segja í bili!!! Ciao!!!

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Jæja þá kom að því!!! Cameron Diaz og Justin Timberlake barasta hætt saman!!! About time segi ég!!!














Og Britney svaðalega sexý um áramótin eins og sjá má að meðfylgjandi mynd!! híhí















Annars er bara mest lítið að frétta, vinna, vinna, vinna og eyða tíma með Hrefnu og co!!! Pabbi verður 55 á sunnudaginn og þar sem að Hrefna fer aftur út eldsnemma á sunnudagsmorgun þá ætlum við að fara öll saman út að borða annað kvöld, gaman, gaman!!! Svo fer ég líklegast eftir það að hitta stelpurnar en þær eru líka að fara út að borða og svo tökum við allar saman e-ð gott pöbbarölt og jafnvel skrall!!! Held það megi nú alveg þar sem maður var nú bara stilltur og góður um áramótin, híhí!!!

mánudagur, janúar 01, 2007

Gleðilegt nýtt á múslurnar mínar!!!

Byrjaði þessa helgina á því að fara í árlega grifflujólaglöggið!!! Fengum einungis þær leiðbeiningar að við ættum að mæta sem annað hvort flappers eða gangsters, heimilisfangið, orðaforða og vorum beðnar um að deila einu leyndarmáli um okkur sem enginn annar vissi!!! Stóra kvöldið mættum við svo í okkar fínasta pússi heim til Höbbu og þar tók við frábært kvöld!!! Allir mættu í geggjuðum out-fittum og þar var drukkið, slúðrað, sagt frá leyndarmálum okkar, hehe, dansað, framið morð og svo drukkið meira!!! Seint og síðar meir fórum við svo í bæinn á Domo og eftir að hafa skotið alla þar inni var haldið á Óliver og að lokum á Kaffibarinn!!! Þetta var æðislegt kvöld í alla staði eins og vanalega!!! Myndirnar eru komnar á myndalinkinn minn!!!














Á laugardaginn var ég boðuð í mat til pabba og þegar ég mætti þangað voru Hrefna systir og öll familían bara mætt til landsins!!! Jeminn hvað mér brá og ég fór barasta að gráta úr gleði, þýðir ekkert að neita því þar sem það náðist á video-cameru, hehe!!! Laugardagskveldinu var síðan eytt í rólegheitum með þeim í faðmi fjölskyldunnar eftir að búið var að skreppa í heimsókn til mömmu og láta hana fá sjokk aldarinnar við að sjá þau!!!














Á Gamlárskvöld var síðan matarboð hjá pabba og Önnu þar sem að við vorum öll samankomin ásamt Petu, Herði og Jóa frænda!!! VIð borðuðum yfir okkur og sprengdum heil ósköp af sprengjum!!! Þegar kominn var tími til að fara í bæinn var ég svo óendanlega þreytt þannig að ég ákvað að vera bara róleg þessi áramótin enda nennti ég engan vegin að fara að hella í mig svona seint og ég verð að viðurkenna að ég var mjöööög fegin í dag, hehe!!!














Í dag var síðan matarboð hjá Huldu frænku og núna er ég endanlega búin að borða yfir mig!!! Týri og Birta skemmtu sér líka konunglega í boðinu en þó ekki áfallalaust þar sem að Týri fékk sér smá dýfu niður af sólpallinum hennar Huldu sem er á fyrstu hæð!!! Þetta uppgötvaðist nú ekki strax en þegar það fattaðist voru allir í sjokki og tóku á rás að fara að leita að greyinu en viti menn, litla skinnið beið þá bara fyrir utan útidyrahurðin eftir því að vera hleypt inn aftur!!! Það er sko alveg á hreinu að hann er enginn vitleysingur þetta yndi!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni