þriðjudagur, júlí 22, 2008














PAKKA, PAKKA, PAKKA....FLYTJA, FLYTJA, FLYTJA!!! Heyri í ykkur í ágúst!!! xxx

miðvikudagur, júlí 02, 2008

Jeremías hvað ég er ekki að nenna að standa í flutningum!!! Er þegar byrjuð á því að sortera dótið mitt þó ég fytji ekki fyrr en um mánaðarmótin því að ég get ekki tekið nema ca. helminginn af draslinu með mér út og verð því að selja sumt og henda öðru!!! Vildi að ég gæti bara leigt fólk til þess að sjá um þetta fyrir mig, hehe!!! Ég er líka búin að vera að keyra mig út í ræktinni undanfarið með því að fara 6 á morgnana og svo aftur beint eftir vinnu á hverjum degi þannig að það er ekki furða að ég sé ekki að nenna að standa í þessu!!! Ég er allavega að verða búin að fara í gegnum fataskápinn minn og váááá hvað ég verð með mikið til að selja í Kolaportinu!!! Notaði bara 6 mánaða regluna á þetta og það er alveg með einsdæmum hvað ég fann mikið af fötum sem voru enn með verðmiðanum, þetta er ekki eðlilegt!!! Vona bara að ég nái að selja þetta allt saman og græði sand af seðlum sem verða síðan étnir upp í H&M í Köben, hihi!!!

Ég er allavega búin að finna útilegu fötin mín, og reyndar sólstrandafötin líka því að það á að vera bongó blíða um helgina á Landsmótinu, vei vei vei!!! Get ekki beðið eftir því að komast í almennilegan útilegufíling og fara á dansiball í lopapeysu, can you picture it, múhahahahah!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni