þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Ohhhh....ég nenni svo innilega ekki þessu prófastússi!!!! Er ekki búin í prófum fyrr en 21. desember svo að ég er ekki að fara að eiga neitt líf næsta mánuðinn!!! Eina sem að heldur mér gangandi þessa dagana er eftirvæntingin fyrir Londonferðinni sem er by the way eftir 43 DAGA...oh já ég er sko farin að telja niður, og jólaglögg Grifflanna!!! Er búin að einsetja mér það að mæta í jólaglöggið þrátt fyrir að ég verði enn i prófum því að við í nefndinni erum búnar að skipuleggja ógleymanlegt glögg!!!
Það er líka búið að vera svo endalaust gaman á Griffludjömmunum undanfarin ar, maður getur bara hreinlega ekki misst af þeim, hehe...bara gaman!!!

sunnudagur, nóvember 27, 2005

Mikið rosalega var gaman á jólahlaðborðinu í gær. Frábær matur og góð skemmtun. Lítið um slúður þar sem að allir voru til fyrirmyndar í sparífötunum!!! Hittumst fyrst nokkur heima hjá mér í fordrykk og fórum svo á Fjörukránna þar sem Grýla tók á móti okkur með mjöð...þar var sungið, dansað og drukkið eins og mönnum væri borgað fyrir það...hehe. Eftirá fórum við svo heim til Þorvalds þar sem að við skemmtum okkur þar til að kominn var tími á bæinn. Get nú ekki sagt að það hafi verið mikil stemmning í bænum enda flestir heima að læra fyrir próf..eins og ég hefði nú líka átt að vera að gera!!! Við Edda gerðum þó heiðarlega tilraun að skemmta okkur en enduðum fljótlega á Subway og fórum svo bara heim. Myndir, myndir, myndir!!!!


laugardagur, nóvember 26, 2005

Fékk frábærar fréttir í vikunni, Snæda sæta er bara búin að ákveða að koma með okkur til London í janúar þannig að upphaflegi hópurinn verður þarna saman kominn. Spurning hvort hún stígi aftur á svið sem Sexy Chick Lady Sadie með hljómsveitinni sinni Switchblade Sadie and the Renegade Playboys???? Hahah það væri magnað!!! Allavegna þá veit ég að þetta verður rosaleg ferð og hlakka endalaust mikið til. Jæja má ekki vera að þessu, þarf að fara að gera mig til fyrir kvöldið....framhald af þeirri sögu á morgun!!!

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Síðasta djammið fyrir próf á laugardaginn en þá er jólahlaðborð með vinnunni á Fjörukránni. Spurning hvað gerist í ár, svaka spennandi!!!! Skelli ég mér aftur upp á svið með Jónsa í Svörtum Fötum??? Verður Gísli snaróður í Appollóinu??? Fær Þorvaldur sér blund á Kaffi Strætó?? Lumbrar Stína á nokkrum hnakkamellum???? Taka Tolli og Kristján upp karaokee græjurnar??? Verður Sigurrós edrú??? Tapar Edda sér í skotunum??? Slítur Júlía sig lausa frá e-bay??? Tekur Hilmar súludans-trans???Hver endar með hverjum og hver lemur hvern??? Þessum og fleiri spurningum verður svarað eftir helgi!!!!

mánudagur, nóvember 21, 2005

Úff...þvílík helgi!!! Búin að vera að mála alla helgina og það var nú ekkert smá mál! Þurfti að byrja á því að lagfæra allar málningar skemmdir og þess háttar, grunna í skemmdirnar og svo á endanum mála....en þetta getur maður!!! Þvílíkt hörkukvendi!!! Fór síðan og keypti mér nokkra nýja hluti í nýju stofuna og er ótrúlega ánægð með breytinguna!!! Nú þarf ég bara að fara að bjóða fólki í partý í nýju stofuna...hehe!!! Ætla síðan að reyna að mála restina af íbúðinni í jólafríinu...jibbý!!! Hér eru nokkrar myndir af nýju, fínu stofunni minni!!!

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Vá ef ég er ekki búin að tryggja mér verðlaunin "besta vinkona ársins 2005" þá veit ég ekki hvað!!! Fékk gefins flugmiða til London í gær og var brottför á morgun sunnudag og heimkoma á miðvikudag. Þar sem að ég er á fullu að mála íbúðina og reyna að læra ákvað ég að það væri nú ekkert svakalega sniðugt að vera að fara...en langaði nú samt!! Eftir smá sálarstríð ákvað ég að gefa Boggu miðann svo að hún gæti farið að hitta ákveðin aðila!!! How good am I!!! Þannig að, elsku Bogga, góða ferð og skemmtu þér ógeðslega vel og mundu: gerðu allt sem að ég myndi gera, hehe!!!


föstudagur, nóvember 18, 2005

Would you believe it!!! Loksins, loksins er Bogga búin að finna löngu týnda tvíburabróður sinn. Eftir leit um hálfa heimsálfuna er hún loksins búin að finna hann. Og viti menn, gaurinn bara orðinn fræg kvikmyndastjarna!!! Hún er reyndar ekki búin að hitta hann ennþá þar sem að hún er bara nýbúin að komast að því hvar hann er að finna en nú er hún bara að safna á fullu fyrir farmiða til Hollywood....hver veit nema að hún verði bara fræg kvikmyndastjarna líka!!! Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd leynir ættarsvipurinn sér ekki!!!

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Jæja það kom að því, gremlings ætlar að vera í pásu um helgina því að hann ætlar sko að mála íbúðina og læra eins og brjálæðingur ef að allt gengur upp!!! Styttist í jólaprófin sem þýðir að það styttist einnig í Londonferðina....íhaaaa!!!! Vá hvað ég get ekki beðið... hahahahha!!!

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Hahahahahaahhaaheheheheheheheheehhahahahahahhah!!!! NÁKVÆMLEGA...I must be a bad girl then!!!!

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Fór í vísindaferð með sálfræðinni í Íslandspóst í gær. Svaka gaman og mikið stuð. Fengum smá kynningu á starfseminni og svo var boðið upp á Nings í kvöldmat og eins mikið af áfengi eins og maður gat í sig látið...nice!!! Að því loknu fórum við öll á Pravda þar sem að tilboð er á bjór fyrir háskólanema. Þar var fjörinu haldið áfram og mikið skvett í kroppinn!! Næst var haldið á Hressó þar sem að við héngum fram eftir kvöldi í rífandi stuði. Rúmlega 2 var ég komin með nóg af Hressó og kíkti á Óliver. Þar hitti ég mikið af góðu fólki sérstaklega Óla sem að tók mig í sveiflu á dansgólfinu og tæklaði það í spað með mér. Að því loknu rétt kíkti ég á bar 11 og svo var kominn heimferðartími enda klukkan að verða 6. Frábært kvöld og þrusustuð!!! Myndir, myndir, myndir!!!!

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

London calling.......!!!!! Þá erum við Bogga, fátæku námsmennirnir, búnar að tapa okkur í geðveikinni og panta okkur far til London!!!! Haldið þið að maður sé grand á því!!! Eftir mikið pressure frá öllum vinunum úti sem að eru farnir að þrá smá Icelandic action þá ætlum að skella okkur í viku að heilsa upp á alla vinina, tékka á status á Londongæjunum þar sem að þessir hérna heima eru ekki alveg að gera sig í augnablikinu og djamma eins og við kunnum best.....íhaaaaa!!!! Reyndar er smá bið í þessa ferð en við erum sko strax byrjaðar að telja niður dagana!!! Hver veit nema við komum bara alls ekkert til baka, múhahah!!!

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Dýrið gengur laust....búin að skrá mig í fyrstu vísindaferðina frá því að ég byrjaði í Háskólanum!!! Ákvað bara að hætta að vera svona mikill félagsskítur og leyfa gremlings aðeins að njóta sín....haha þ.e. meðal annarra háskólanema því hann er búinn að vera ansi öflugur á djamminu undanfarið!!! Svo að á föstudaginn eftir leiðindaviku, fullt af verkefnaskilum og leiðindum, verður allt kolvitlaust!!! íhaaaa....

laugardagur, nóvember 05, 2005

Íhaaaaa....! Djammsaumó í gær, ekkert smá gaman!!! Hittumst heima hjá Ásdísi og tjúttuðum eins og vitleysingar, vorum bara nærrum því of seinar í bæinn. Brunuðum svo á Óliver þar sem að allt hnakkalið bæjarins var mætt á svæðið. Stemmningin þar ekki nógu mikil þannig að við örkuðum á Alþjóðahúsið og þaðan beinustu leið á kaffibarinn. Æðislegt kvöld og allir í rífandi stuði!!!! Bíð spennt eftir næsta djammsaumó!! Myndir, myndir, myndir!!!!

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Eins og flestir sem að þekkja mig vita þá er ég ansi lagin við að gera e-ð allt annað þegar að ég á að vera að læra...það gerðist einmitt í síðustu viku!!! Átti að vera að læra fyrir próf en sá þá auglýsingu á netinu um að það væri hægt að fá frítt persónugert debetkort fyrir 1. nóv...og hvað haldið þið??? Auðvitað þurfti ég að fá mér svoleiðis, það þýddi að ég eyddi næsta klukkutímanum í að setja inn mynd, sjá til þess að hún væri að réttri stærð og svo framvegis, bara svo að ég þyrfti ekki að læra...ker azy!!! Fór svo í dag að sækja nýja kortið mitt og hér eru niðurstöðurnar!!! íhaaaaa.......miklu flottara en ykkar...hahahahha!!! Kolvitlaus með kortið um helgina!!! Snaróð!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni