Fór í vísindaferð með sálfræðinni í Íslandspóst í gær. Svaka gaman og mikið stuð. Fengum smá kynningu á starfseminni og svo var boðið upp á Nings í kvöldmat og eins mikið af áfengi eins og maður gat í sig látið...nice!!! Að því loknu fórum við öll á Pravda þar sem að tilboð er á bjór fyrir háskólanema. Þar var fjörinu haldið áfram og mikið skvett í kroppinn!! Næst var haldið á Hressó þar sem að við héngum fram eftir kvöldi í rífandi stuði. Rúmlega 2 var ég komin með nóg af Hressó og kíkti á Óliver. Þar hitti ég mikið af góðu fólki sérstaklega Óla sem að tók mig í sveiflu á dansgólfinu og tæklaði það í spað með mér. Að því loknu rétt kíkti ég á bar 11 og svo var kominn heimferðartími enda klukkan að verða 6. Frábært kvöld og þrusustuð!!! Myndir, myndir, myndir!!!!

<< Home