miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Ég trúi því varla að sumarið sé að verða búið!!!

Mér finnst það búið að líða svo hratt og ég er varla búin að gera nokkurn skapaðann hlut!!! Verð að fara að spýta í lófana og gera eitthvað úr þessu sumri :D

Er allavega að fara í fyrsta og eina brúðkaupið í sumar á laugardaginn!!! Það verður haldið á Ingólfshvoli, mitt á milli Hveragerðis og Selfoss, þannig að það er aldrei að vita nema maður kíki í bæinn eftir á ef að það verður stuð!!! Nú eða bara að maður tékki á hnökkunum á Selfossi ;) !!!














Svo verður bara kominn september í næstu viku og haustið byrjað!!! Finnst eitthvað svo skrýtið að vera ekki að fara í skóla núna en er jafnframt því mjög fegin að vera í pásu!!! Fer líklega í nám úti næsta haust þannig að ég ætla bara að njóta þess að vera í smá fríi :D

Anyhow þið sem ætlið að kíkja e-ð á laugardaginn endilega verið í bandi!!!
xxx

mánudagur, ágúst 11, 2008

BABY BOOM 2008

Vá hvað ég er orðin rík "frænka"!!! Á rúmum tveimur vikum eru fjögur lítil kríli búin að bætast í hópinn þannig að það er sko að fara að vera nóg að gera hjá mér í frænkuhlutverkinu á næstunni!!! Hérna eru litlu krílin sem eru búin að bætast í hópinn á þessu ári!!! Byrjum á nýjasta meðlimnum:

Ágúst: Emil Orri hennar Boggu














Júlí: Möller-tvíburarnir hennar Ásdísar














Júlí: Ungfrú Miklabraut hennar Ingu Birnu
(sökum þess að hún fæddist á Miklubrautinni )













Maí: Tóbías Mar hennar Addýjar














Apríl: Gerða hennar Ránar














Mars: Róbert Dagur hennar Hildar Á.














Janúar: Hrafndís Hanna hennar Sigrúnar














Og svo eiga tvö eftir að bætast í hópinn á þessu ári!!! BABY BOOM 2008!!!

Annars er bara allt hið besta að frétta af mér og ég er loksins flutt!!! Búið að vera að brjálað að gera í þessum flutningum og mikið er ég fegin að þetta er afstaðið!!!

Núna er ég síðan bara í góðu yfirlæti hjá pabba og Önnu þar til ég fer út í lok október!!!

Ég er komin með æðislega íbúð í Köben sem ég fæ afhenda í október!! Hún er staðsett í Österbro rétt hjá Boggu og Snædísi, ca. 2 mín til þeirra, og er akkúrat það sem ég var að leita af!!! Frábært að vera svona nálægt Boggu svo að ég geti skroppið yfir reglulega til að knúsa Emil Orra!!! Mér skilst að íbúðin sé örlítið stærri en Drápuhlíðin og hún er á annarri hæð þannig að ég þarf ekki að vera hrædd við innbrotsþjófa lengur, hihi!!! Svo er ég bara ca. 7 mín að hjóla niður á Kongens Nytorv þaðan þannig að ég gæti ekki verið ánægðari!!!

Svo er ég í fríi í þessari viku sem er æðislegt og ekki veitir af eftir þessa flutninga!!! Er lítið sem ekkert búin að kíkja út á lífið né gera nokkuð annað en að flytja undanfarin mánuð svo að núna get ég loksins farið að lifa lífinu aftur!!! Það gæti jafnvel farið svo að ég nálgist hina tölvuna mína og fari að reyna að setja inn myndir bráðlega :D

x

miðvikudagur, ágúst 06, 2008

Haha, þetta er nú svolítið fyndið!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni