mánudagur, október 31, 2005

Yes, ég er að tapa mér úr spenningi...alveg að koma helgi!!! Það verður sko slett ærlega úr klaufunun enda held ég að ég eigi það nú alveg skilið eftir allt þetta prófastúss!!! íhaaaa......
En að öðrum málum...loksins er búið að skíra Ragnhildi Jóhönnu. Skírnin fór fram á sunnudaginn heima hjá pabba og Önnu og var þetta bara hin prýðilegasta athöfn. Litla snúllan lét þó heyra í sér þegar verið var að skíra hana og var ekkert ánægð með að það væri verið að ausa köldu vatni á sig. Til hamingju með nafnið litla snúlla og til hamingju með prinsessuna Hrefna og Grímur Egill!!! myndir!!!

sunnudagur, október 30, 2005

Jæja þá er ég "officially" farin yfir um!!! Munið mig svona en ekki eins og ég verð þegar að þið heimsækjið mig á Klepp.... múhaha. Búin að vera að vinna í heimaprófi í 15 tíma og ég er ekki nærrum því búin....svo þreytt, klukkan er 5....farin og búin að vera....munið Kleppur ef þið ætlið að koma í heimsókn, verð þessi snaróða á ganginum berjandi hausnum á mér í vegg......ég er kolcrazy!!! múhahahahahahahahhahahahhaahhahahha!!!!!!

fimmtudagur, október 27, 2005

JJiiiiii...Bogga er alltaf að reyna að spilla mér, það nýjasta er að hún vill fá mig með sér til New York næsta sumar!!! Ég er reyndar alveg game þannig að nú er bara að sannfæra alla um að gefa mér upp í ferðina í jólagjöf og kaupa miða á tilboði rétt fyrir jól...múhaah..getið þið ímyndað ykkur gremlingsana tvo á Manhattan....össösöss!!! Held að við eigum nú eftir að gera allt kolvitlaust þar...hehe. Og ef ekki safnast upp í eitt stk. NY ferð þá skellum við okkur bara til London í staðin, held að Camden sé farin að sakna okkar!!!

þriðjudagur, október 25, 2005

Á laugardaginn útskrifaðist Ásdís með pompi og prakt með mastersgráðu í hagfræði. Í tilefni af þessum merkisdegi hélt hún smá teiti fyrir nánustu aðstandendur. Vil óska henni innilega til hamingju með þennan merka áfanga...búin með verkfræði og masterinn í hagfræði, ágætis efni í forstjóra..yeah!!! myndir!!!

Skelltum okkur í kröfugönguna í dag og eins og við mátti búast var múgur og margmenni niðri í bæ. Fór með mömmu, Hrefnu systur, Grími, Ragnhildi litlu, Boggu, Huldu frænku og Auði vinkonu Hrefnu. Frábær dagur og mikil stemmning. Vonandi skilar þetta sér svo í stóru feitu launaumslagi í framtíðinni. Myndir hér.

föstudagur, október 21, 2005

Vorum að koma heim af airwaves, snaróðar og fullar að TAB (thin and beautiful)!! Ekkert gin og tonic hjá okkur, bara TAB og tonic, múhahha! Gríðar stemmning, allt að gerast, hægri vinstri, lambakjötið heitt!!! Ussss...gusgus! Shit og ég að fara í próf á laugardag.... en hey maður segir ekki nei við gestalista!!! íhaaaaa!!!!!!

miðvikudagur, október 19, 2005

Átti alltaf eftir að skella þessum myndum inn sem að voru teknar þann 1. október síðastliðinn. Ég, Bogga og Edda skelltum okkur á smá skrall og fórum á Gullfoss og Geysi á Óliver. Frábært kvöld þrátt fyrir að við höfum lent á svolítið steiktum gaurum á dansgólfinu, en hey það var bara fyndið. Fínt að geta lífgað aðeins upp á síðuna þegar að maður er í svona leiðinda lærdómsstússi. Enjoy !!!

þriðjudagur, október 18, 2005

AAAArrrggg...og garg!!! Er búin að vera í verkefnavinnu alla helgina og þetta er bara rétt að byrja. Búin að rumpa af einu stk. skýrslu og einu stk. ritgerð um helgina og í vikunni þarf ég að skila einu stk. skýrslu til viðbótar og fara í tvö próf... ekki beint það skemmtilegasta sem að ég geri. En svo verður maður bara að verðlauna sig um helgina í staðin og skvetta smá í kroppinn, haha. Airwaves í fullu gangi og hver veit nema að maður skelli sér á tónleika um helgina. Annars er þetta ástandið á skrifborðinu mínu núna og verður líklega svona þar til í vikulok...vonandi held ég geðheilsu. Wish me luck!!!

laugardagur, október 15, 2005

Gærkvöldið var heldur rólegt þar sem að ég er að drukkna í verkefnavinnu. Fékk þó smá félagsskap þar sem að Ragnhildur litla gisti hjá mér í nótt. Var frekar stressuð þar sem að hún er ekki orðin 5 mánaða en þetta gekk eins og í sögu. Litla prinsessan vaknaði bara einu sinni og svaf svo restina af nóttinni. Varð að setja inn mynd af snúllunni enda er hún ekkert eðlilega sæt.

sunnudagur, október 09, 2005

Þá er grifflugleðinni lokið og þetta var ekkert smá skemmtilegur dagur. Nefndin stóð sig ótrúlega vel í skipulagningu og á skilið hrós frá okkur öllum. Byrjuðum daginn á því að hittast á Laugaveginum í þeim allra ljótustu kjólum sem að við gátum fundið og síðan var förinni heitið á Grand Rock þar sem að var tekið á móti okkur með skoti og ísköldum bjór. Þar fór fram "pubquiz" og spyrillinn var enginn annar en foringi Íslenska glæpafélagsins.














Að því loknu var brunað upp í Baðhús þar sem að fram fór kennsla í salsa dönsum og svo var slakað á í heita pottinum eftir á. Þegar að við vorum búnar að gera okkur sætar og fínar fórum við svo á Óliver þar sem að við fengum dýrindismáltíð. Vorum þær einu á staðnum til að byrja með en allt í einu fylltist staðurinn af 120 spænskum bachelorum þannig að þið getið bara rétt ímyndað ykkur athyglina sem að við fengum, hvítvín í boði hægri vinstri..hehe. Næst fórum við í partý hjá Áslaugu og eftir smá Gajol upphitum fór fram kynning á hjálpartækjum ástarlífsins sem vakti mikla lukku. Skömmu seinna mætti DJ á svæðið og sá um tónlistina þar til að tími var kominn til að fara í bæinn. Brunuðum aftur á Óliver þar sem að var búið að "plögga" okkur á gestalistann og gjörsamlega spændum upp dansgólfið..híhí. Ég vil bara þakka öllum sem að tóku þátt í þessum frábæra degi og þar sem að ég er í nefndinni fyrir næsta árið þá skal ég lofa því þetta verður endurtekið. Myndir, Myndir, Myndir!!!

föstudagur, október 07, 2005

Fór í óvissuferð með vinnunni í gær. Lögðum í hann upp úr hádegi og fórum í Skorradal í ævintýraferð. Æðisleg ferð og mikil skemmtun í gangi. Enduðum síðan í bænum, sumir skrautlegri en aðrir..hehe. Hér eru myndir úr ferðinni.

þriðjudagur, október 04, 2005

Nú styttist í hina árlegu grifflugleði sem að verður haldin næstkomandi laugardag. Nefndin sér um allt skipulag og því vitum við hinar ekkert nema það að við eigum að mæta með góða skapið í ljótustu kjólum sem að við höfum nokkru sinni augum litið...haha! Það verður gaman að sjá hvað verður í vændum þennan dag.

laugardagur, október 01, 2005

Phew, þetta verður víst rosaleg helgi. Fórum í teiti til Ásdísar í gær þar sem að allir voru í rífandi stuði. DJ Bogga sá um tónlistina og var alveg snaróð á i-podinum á meðan aðrir sáu um að skemmta sér vel. Eftir það var förinni heitið á Vegamót þar sem var dansað inn í nóttina. Eitt kvöld búið og annað eftir...ussususs! Hér eru myndir frá kvöldinu.

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni