þriðjudagur, febrúar 10, 2009

Hola chicas!!!

Það er búinn að vera svo stanslaus gestagangur hjá mér svo ég hef ekki haft neinn tíma til að blogga undanfarið!!! Fyrst komu Ben og co í heimsókn, helgina þar á eftir kom Sigrún sæta til mín í helgarferð, helgina þar á eftir var vinnudjamm og íslendinga partý og svo núna um helgina kom Hrefna systir með krakkana í heimsókn til mín!!!

Já maður er sko búinn að vera busy og þetta er ekkert að fara að róast núna á næstunni af því að .......

ÉG ER AÐ KOMA TIL ÍSLANDS Á FIMMTUDAGINN!!!!

Jámm er að skella mér í smá helgarferð heim og stoppa mjög stutt þannig að ef einhverjir eru til í hitting þá hvet ég ykkur eindregið til að hafa samband við mig í gamla íslenska símanúmerið mitt :D

Ég á eftir að vera á einhverju bölvuðu spani þannig að það er langbest að þið hafið samband við mig svo að ég geti hitt sem flesta :D vá vá vá hvað ég hlakka til :D

Sé ykkur hress og kát um helgina og ef einhver er til í að kíkja út á lífið á laugardaginn þá endilega líka hafa samband við mig því ég get ómögulega farið heim án þess að kíkja aðeins í bæinn ;)

C YA xxx

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni