mánudagur, ágúst 28, 2006

Loksins er eg nettengd og með smá tíma til að setja inn nokkrar myndir!!! Er stödd í Skövde í Svíþjóð í heimsókn hjá Hrefnu og co!!! Ákvað að skella mér þangað þar sem ég gat ekki hugsað mér meira djamm í London!!! Búin að djamma svo mikið þar og gott að komast hingað í rólegheitin í nokkra daga!!! Kom í gær og verð fram á miðvikudag og fer svo til Kaupmannahafnar!!! Anyways þá er búið að vera alveg truflað í London og ég hef sjaldan upplifað annað eins!!! Búin að taka skrilljón myndir og það mun taka heillangan tíma að vinna í þeim og sögunum á bak við þær!!! En svona til að byrja með þá eru hér myndir frá fyrsta deginum okkar úti!!!















Fórum snemma að hitta Andy og Shearer í drykk og héldum áfram a pöbbarölti þar til komið var að því að fara í opnunarpartý niðri í Soho hjá Front Page magazine, það var nú meira dæmið!!! Vorum með VIP aðgang þar sem að var ókeypis vín allt kvöldið!!! Ker Azy!!! Allt fullt af svona wannabe celebrities og gellum með sílikon en þetta var bara fyndið!!! Svo þegar að maður fór heim þá fékk maður afhendan troðfullan gjafa poka með fullt af alls kyns snyrtivörum, ekki slæmt það!!! Þetta var sem sagt ágætis upphitun á því sem var í vændum, en meira um þá geðveiki seinna!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

AUF WIEDERSEHEN!!!!

Jæja þá er ég flogin á brott næstu vikurnar!!! En ekki örvænta því að ég mun uppfæra eins mikið og ég get (og nenni) að utan!!! Hafið það sem allra best!!! Mússí múss!!!

sunnudagur, ágúst 13, 2006

4 DAGAR Í LONDON OG KÖBEN!!!!

Tíminn flýgur og það er komið að næstu utanlandsferð!!! Það sem er svo æðislegt við þessa ferð er að við erum að fara að vera allar bestu vinkonurnar saman í útlöndum og það gerist sko ekki oft!!!! Snædís skvís ákvað um daginn að skella sér bara með okkur á V-festivalið enda er bara gaman að djamma með okkur, heheh!!! Þannig að ég flýg út eldsnemma á fimmtudagsmorgun og hitti Boggu á flugvellinum í London þar sem hún er í Köben núna!!! Um kvöldið kemur síðan Snædís og þá verður nú örugglega gert e-ð skemmtilegt, veit að ég og Bogga verðum allavega búnar að hita vel upp áður en hún kemur og erum þegar búnar að mæla okkur mót við alla vinina á fimmtudagskvöld!!! Helginni verður svo eytt í Chelmsford á V-festivalinu og það á eftir að vera geðveikt enda hefur annað eins line-up varla sést!!! Hlakka náttúrulega mest til að sjá Radiohead en það er fullt af öðrum hljómsveitum sem ég ætla að sjá eins og td. Beck, Keane, Fatboy Slim, Sugababes, Charlatans, Starsailor og margir fleiri svo að ég verð hlaupandi á milli sviða eins og brjálæðingur!!!














Snædís fer síðan heim á mánudeginum og þá tekur við afslöppun og verslunarleiðangrar!!! Á miðvikudeginum koma svo Ásdís og Embla!!! Fyrsta skiptið sem við erum allar fjórar saman í útlöndum, jíhaaaaaa!!!! Planið er heldur óljóst en á föstudeginum förum við á Reading og ætlar Ása að slást með í för!!! Laugardeginum verður eytt í London og þá verður farið á markaði, kaffihús og svo djamm um kvöldið!!! Á sunnudeginum fer Ásdís heim, Bogga til Köben og Embla til sólarlanda en þá ætla ég einmitt að skella mér aftur á Reading að sjá allar rokkhljómsveitirnar!!! Á þriðjudeginum mun ég svo líklega fljúga til Kaupmannahafnar og eyða síðustu vikunni þar með Snædísi og Boggu!!! Þá verður skroppið til Malmö í heimsókn til familíunnar, skellt sér tónleika í tívolíinu og haldnar grillveislur svo það er alveg nóg að hlakka til!!!














Þetta verður frekar stíft plan og ekki mikil afslöppun en ég hlakka bara til!!!! Verður reyndar ágætt að komast í viku til Kaupmannahafnar og sleppa úr geðveikinni í London en þetta á allt saman eftir að vera kol ker azy!!! Svo þegar heim er komið tekur bara við skólinn og vinna þar til í október en þá fer ég til Madrídar með vinnunni!!! Já það er erfitt að vera fátækur námsmaður, hahahah!!! Mússí múss!!!

miðvikudagur, ágúst 09, 2006

8 DAGAR Í LONDON OG KÖBEN!!!!

Já tíminn flýgur og nú er þetta bara að skella á!!! Ég er varla viðræðuhæf af spenningi!!! ANyways þá gerði ég mest lítið um versló, kvaddi Hrefnu systir og kíkti á tjúttið á sunnudaginn!!! Meira var það ekki í bili þar sem ég er orðin allt of spennt!!! Djööööö.....þetta verður sko stemmningin!!!














og skrilljon manns!!!! yeehaaaa!!!!

föstudagur, ágúst 04, 2006

Jæja það er nú liðinn smá tími síðan ég skrifaði síðast en ég er bara búin að vera netlaus!!!! Lánaði Hrefnu systur íbúðina mína þar sem að hún er að flytja til Svíþjóðar á sunnudaginn og þurfti að afhenda sína íbúð mun fyrr!!! Þannig að síðast liðnar vikur er ég bara búin að vera hér og þar!!! En það er búið að vera nóg að gera!!! Byrjuðum á Viðeyjarpartýinu sem var náttúrulega bara snilld!!!!














Helgina þar á eftir klíkti ég með Dóra og Sigrúnu út á lífið á laugardeginum!!! Við hittumst hjá þeim og sötruðum öl, fórum svo á Barinn þar sem maður hitti margann manninn í rífandi stuði!!!














Á sunnudeginum vorum við Bogga síðan nett kærulausar og duttum aðeins í það, haha!!! Fórum og hittum Jens, Ásu og strákana á Barnum í bjór og svo var haldið á Sigurrósar tónleikana á Miklatúni sem voru bara æði!!! Eftirá fórum við aftur á Barinn og vorum þar í gargandi stuði langt fram á nótt!!! össssss!!!














Í vikunni fór ég svo með sætu systrabörnin mín á róló og naut síðustu stundanna með þeim áður en að þau flytja af landi brott!!! Það á sko eftir að vera táraflóð á sunnudaginn þegar þau fara en ég verð bara að vera dugleg að heimsækja þau í Svíaveldi!!!














Hulda hefur verið dugleg að koma í heimsókn með Birtu litlu í vikunni og það er nú meira hvað hún er mikið krútt!!! Hún er nú þegar búin að fá heilan fataskáp af fötum svo henni verði ekki kalt í vetur og hún er bara snúlla í þessum fötum, hahah!!!














Sem sagt búið að vera nóg að gerast undanfarið og ég skellti nokkrum myndum frá júlí saman í eitt albúm!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni