Á föstudaginn seinnipartinn keyrðum við í fjallaþorpið Viladrau þar sem að brúðkaupið var haldið!!! Ferðin gekk mjög vel en ég var að tryllast úr lofthræðslu að keyra upp fjallið!!! Vegirnir voru sjúklega hlykkjóttir og nánast ekkert vegrið!!! Svo var bara þverhnípi niður þannig að manni fannst maður nú ekkert vera neitt sérstaklega öruggur þarna!!! Sem betur fer var ég ekki að keyra!!!
Um leið og við vorum búin að tékka okkur inn á hótelið drifum við okkur í villu foreldra Jonesy's þar sem að búið að var að bjóða öllum sem komust í grillveislu!!! Þetta var engin smá villa og við sátum þar, sötruðum öl og kjöftuðum langt fram á nótt!!!

Morgunin eftir vöknuðum við snemma og drifum okkur út á sundlaugabakka enda var geggjað veður!!! Þar sem að okkar hótel var með bestu sundlaugina í þorpinu þá komu allir hinir krakkarnir til okkar og eyddu morgninum þar hlustandi á tónlist, sötrandi bjór og kælandi sig í lauginni!!!

Um 3 leytið drifum við okkur svo að gera okkur til fyrir brúðkaupið og um klukkutíma síðar kom rúta að sækja okkur til að fara með okkur að klaustrinu þar sem að brúðkaupið og veislan fór fram!!!

Athöfnin var stutt og laggóð og reyndar mjög fyndin!!! Presturinn eða hvað sem hann var leit út fyrir að vera barþjónn, talaði varla stakt orð í ensku sem varð til þess að brúðguminn sprakk úr hlátri allavega 4 sinnum á meðan athöfninni stóð!!! Þar af leiðandi voru allir hálf hlæjandi allan tímann!!!

Að athöfn lokinni var boðið upp á tapas rétti og svalandi hressingar sem að leiddu ansi fljótt út í eitthvað mikið sterkara hjá strákunum!!! Veðrið var æðislegt þannig að við vorum úti í blíðunni frá 5 til 8 eða þar til að formlega borðhaldið hófst!!!

AÐ því loknu kom hljómsveit frá Venúsúela að spila og dreift var allskonar grímum, höttum, lúðrum og þess háttar sem varð til þess að þetta leit út fyrir að vera eitt alls herjar grímuball!!! Fólk var því ekki lengi að rjúka á dansgólfið með skemmtilegu hattana sína og taka sporin!!!

Dansinn dunaði langt fram á nótt og þegar síðasta rútan kom að sækja okkur um hálf fjögur var enginn tilbúinn að fara heim!!! Dansgólfið var enn fullt af liði í rífandi stuði sem var engan vegin tilbúið að hætta að djamma!!!

Að lokum var þó hægt að ná okkur í rútuna en þá tók bara við rútupartý þar sem að minibarinn í rútunni var gjörsamlega tæmdur og þegar við vorum komin í aftur í Viladrau var bara haldið garðpartý fyrir utan hótelið hjá Chris og Gigi og þeim, hóteleigandanum til mikils ama!!! Seint og síðar meir tókst honum svo að sannfæra okkur um að koma okkur í háttinn og kannski bara sem betur fer þar sem að daginn eftir þurftum við að keyra aftur til Barcelona, skila bílnum á flugvellinum og fljúga til Köben!!! Við skulum bara segja að hressleikinn hafi ekki verið í hámarki þann daginn!!!
Nýjar myndir komnar á myndasíðuna mína!!!
Nú á ég bara eftir að setja inn síðasta hluta ferðasögunnar og hann kemur strax eftir helgi!!! Þangað til segi ég bara góða helgi!!!