fimmtudagur, júlí 12, 2007

Jæja þá er ég loksins komin heim á klakann!! Get nú ekki sagt að það hafi verið rífandi hamingja að koma heim en það var nú samt gott að lúlla í rúminu mínu í nótt!!!

Bloggið gekk nú heldur erfiðlega þarna úti sökum anna og lélegrar nettengingar þannig að nú byrjar ferðasagan og myndir koma inn eins hratt og er mögulegt!!! Ætla að byrja núna á fyrstu tveimur dögunum mínum í Danmörku og Svíþjóð!!!

Ég fór sem sagt út á fimmtudagskveldi og strax á föstudeginum skellti ég mér yfir til Malmö á Midsommar afton að hitta Hrefnu og fjölskyldu og Dýrleifu frænku og fjölskylduna hennar!!! Þarna var algjört æði að vera og allir í sólskinsskapi!! Ég náði nú ekkert að stoppa alltof lengi því að um kvöldmatarleyti hringdu Bogga og Snædís í mig og heimtuðu að fá mig tilbaka til Köben á tjúttið!!! Ég skellti mér því í lestina tilbaka og fór á tjúttið með þeim sem var alveg hrikalega gaman og ágætis byrjun á ferðinni!!!














Á laugardeginum skelltum við Bogga okkur svo í bæinn á kaffihús í góða veðrinu og seinni partinn kom Martin og sótti okkur og við keyrðum í sumarbústað Kasper bróður hans!!! Þar var öll fjölskylda strákanna samankomin og við grilluðum og borðuðum saman í bústaðnum í mjög góðu yfirlæti!!! Síðar um kvöldið skelltum við okkur svo á ströndina þar sem að var einhver brenna var í gangi og tékkuðum á statusnum þar. hehe!!! Að því loknu fórum við í smá öl og hressingu heim til Kaspers á Istegade áður en við skelltum okkur svo á megatjútt sem varði alveg fram undir morgun!!! Við hittum fullt af fólki á tjúttinu og skemmtum okkur alveg æðislega vel og ég alveg tilbúin að flytja til Köben helst á morgun, híhí!!!














Á sunnudeginum var svo bara afslöppun fyrir Barcelona ferðina en ég segi frá henni og set inn myndir eins fljótt og ég get!!

Myndir frá fyrstu tveimur dögunum má finna á myndasíðunni minni sem er linkað á hér til hægri!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni