laugardagur, desember 31, 2005

Fórum í útskrift hjá Sollu í gær, svaka stuð.....dansað eins og brjálæðingar!!! Þaðan lá leiðin á Kaffibarinn þar sem að við lentum í partýi með fræga fólkinu og skemmtum okkur langt fram á nótt!!! Í kvöld er svo aðalkvöldið og mikil eftirvænting í gangi!!! Vona að þið hafið það sem allra best um áramótin og góða skemmtun!!!
Myndir, myndir, myndir!!!!

föstudagur, desember 30, 2005

Jibbý, jibbý, jibbý!!!! Mesta djammhelgi ársins alveg að skella á!!! Búnar að redda öllu fyrir áramótin þannig að það má búast við frábæru partýi...íhaaaa!!!! Svo er útskrift og partý annað kvöld þannig að það verður þvílík keyrsla þessa helgi!!! En maður á nú eftir að fagna próflokum og ekkert búin að djamma heillengi þannig að ég get ekki beðið eftir að djamma með stelpunum mínum, hehe!!! Allavegna erum við Grifflurnar súper spenntar fyrir áramótunum og ég vona að þetta verði ógleymanlegt kvöld!!!

mánudagur, desember 26, 2005

Jæja þá er fríið bara búið og vinna á morgun!!! Reyndar er þessi vinnuvika aðeins styttri og svo bara áramót næstu helgi!!! En þetta eru búin að vera rosalega róleg og þæginleg jól, ekkert stress eða vesen!!! Við stöllurnar skelltum okkur í bæjarstemmninguna á Þorláksmessu og smá öl eftir á og hittum útlendingana þær Snædísi og Ósk, hehe!!! Æðislegt að hitta þær aftur og þó svo að Snædís stoppi stutt í þetta skipti þá hittum við hana aftur í London í janúar og Ósk verður náttúrulega þar í rífandi gír líka!!! Skellti inn nokkrum myndum!!! Þorláksmessa!!!!

sunnudagur, desember 25, 2005

Úff hvað maður er búinn að hafa það gott þessi jólin! Var að koma úr jólaboði hjá pabba og Önnu og eyddi jólunum hjá mömmu og Jóhanni!!! Það er bara verst hvað þessi jól eru stutt og aðeins einn dagur eftir af fríinu, svo bara vinna á þriðjudag!!! Vona að það séu allir búnir að hafa það jafngott og ég, skellti inn nokkrum myndum af hátíðarhöldunum en þær eru aðallega af yndislegu litlu systrabörnunum mínum!!! Jólamyndir!!!!

laugardagur, desember 24, 2005

Gleðileg jól elsku krúsídúllurnar mínar!!!! Vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðarnar, veit að ég ætla svo sannarlega að taka því rólega og borða góðan mat. Hlakka til að sjá ykkur öll í áramótapartýinu!!!!
xxx Guðrún

miðvikudagur, desember 21, 2005

Loksins, loksins búin i prófum!!!!! Íhaaaaaaa.........!!!!! Held að ég sé búin að tapa vikusvefni og þó nokkrum kílóum í þessu helvíti en nú er bara ljúfa lífið framundan!!! Jól eftir 3 daga og ég ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf, það verður bara vinna a morgun og svo jólagjafainnkaup langt fram a kvöld. Ætla að klára þetta a morgun svo að ég geti notið Þorláksmessu í rólegheitum með stelpunum....bjór og læti!!! Svo er bara að borða góðan mat og njóta lífsins þessi litlu jól!
Ég og Bogga ætlum sko að vera svona litlir djöfsar öll jólin...hahahah!!!

þriðjudagur, desember 20, 2005

Verð að deila einni sögu hérna með ykkur sem að ég var að lesa!!! Kona kom til Freud til þess að leita hjálpar vegna mikilla magaverkja og óreglulegra blæðinga. Freud var sannfærður um það að orsökin væri of mikil sjálfsfróun og eina leiðin til þess að lækna hana væri að framkvæma á henni nefaðgerð!!! Fékk góðvin sinn, Fliess til þess að framkvæma aðgerðina. Nokkrum dögum síðar þurfti að gera aðra aðgerð á konugreyinu þar sem að hún var hætt komin af völdum sýkingar. Í ljós kom að grisja hafði gleymst í nefinu á kerlingagreyinu. Freud kenndi Fliess um þetta, flúði og datt í það!!!! Hahahaha, hafið þið heyrt það fáránlegra!!! Magaverkir vegna of mikillar sjálfsfróunar og best að gera þá aðgerð á nefinu!!! Hló mig algjörlega máttlausa yfir þessu, ágætt að geta lyft sér aðeins upp í þessum blessaða prófalestri. Annars bý ég bara uppi í skóla núna eins og sjá má og get ekki beðið eftir að lífið komist í eðlilegar skorður aftur. Eitt próf eftir og svo eru bara jól og stanslaust partý þar til í lok janúar!!!!

laugardagur, desember 17, 2005

Þá er búið að krýna Glamúrgriffluna 2005!!!! Stelpurnar mættu í árlega jólaglöggið með það eina að vitneskju að þær þyrftu að vera í glamúr outfitti, little did they know!!! Við í nefndinni vorum nefnilega búnar að skipuleggja heila fegurðarsamkeppni handa skvísunum, var búið að farða okkur í því tilefni, haha!!! Doddi og Gulli voru fengnir til þess að vera dómarar og mikið ógeðslega var þetta fyndið!!! Dæmt var eftir framkomu, þokka og vitsmunum. Allar þurftu stelpurnar að svara mis-vandræðalegum spurningum og stóðu sig hreint með prýði!!! Reyndar var gólfið frekar sleipt, spurning hver var að verkum þar, en það datt nú engin kylliflöt!!!














Að lokum stóð uppi einn sigurvegari og Glamúrgrifflan 2005 var Erla megabeib!!! Dómararnir endurtóku þó aftur og aftur að þetta hefði verið mjög erfitt val, enda svaka skutluhópur á ferð, þannig að: girls don't be sad!!! Einnig voru veitt aukaverðlaun fyrir bestu framkomuna, vinsælastu stúlkuna, Icelands next top model, Freyjustúlkuna og polaroid ljósmyndafyrirsætuna!!!! Þurfti að fara heim að læra eftir þetta svo ég býst við að stúlkurnar séu í svaka sveiflu einhvers staðar núna og vona að þið séuð að skemmta ykkur frábærlega!!! Takk fyrir æðislegt kvöld!!!! xxx
Myndir, myndir, myndir!!!!

fimmtudagur, desember 15, 2005

Hahahahahahah, er búin að hlæja mig máttlausa af þessum blessaða lokaþætti af bachelornum og eftirþættinum með Sirrý!!! Hélt ég myndi gubba á tímabili þetta var svo glatað!!! Hef reyndar afrekað það að horfa ekki á einn einasta þátt frá upphafi til enda af þessum blessaða bachelor, en hef oftast náð endinum þegar að ég hef verið að bíða eftir að Silvía Nótt byrji!! Hún er náttúrulega bara snilld!!! Anyways þá efast ég um að nokkur hafi verið í vafa um hvora hann myndi velja og þetta gat ég séð bara með því að horfa á endirinn á nokkrum þáttum!!! Annars fer ég alveg að verða búin i prófum og er búin að vera hörkudugleg að lesa með Sigurrós og CocoRosie í botni. Náði að krækja mér í hita og veikindi um daginn og er bara enn að jafna mig svo að afkastagetan er kannski ekki búin að vera í hámarki en ég er nokkuð sátt, þar til annað kemur í ljós á prófinu!! Griffluglögg á morgun, er orðin svaka spennt.....enda glamúrþema í gangi, metnaður í hámarki!!!

mánudagur, desember 12, 2005

Jæja þá er prófatörnin hálfnuð og mér bara búið að ganga vel so far!!! Reyndar er næsta próf sem er 19. des lang erfiðast og nú er ég bara komin í lærdómstörn dauðans...!!! En það eru bara 4 dagar í jólaglöggið, 19 dagar í besta partý ársins og 28 dagar í London ferðina, svo að það er nóg af skemmtilegum atburðum framundan. Ég og Bogga erum nú þegar búnar að plana meirihluta London ferðarinnar okkar og það lítur út fyrir að við verðum að framlengja því annars eigum við ekki eftir að ná að gera allt. Komst líka að því að skólinn byrjar mun seinna en ég hélt svo ég segi bara "Why not"!!! Hlakka t.d. mikið til að fara í Harrods og hitta alla gömlu vinnufélagana, versla í flottustu búðunum o.s.frv. En mest hlakka ég til að hitta vinina og skemmta mér með þeim...öss þetta verður rosalegt!!!

föstudagur, desember 09, 2005

Þið verðið nú að viðurkenna að ég er BARA SNILLINGUR!!!!!! Haldið þið að ég sé ekki bara búin að redda stórum sal fyrir áramótin....þannig að takið daginn frá, þetta verður besta fokking partý ársins og risastórt!!!! Þá vitið þið hvað þið eigið að gera á gamlárs og þurfið ekki að velta ykkur lengur upp úr því, þurfið bara að mæta og með þá sem þig viljið taka með í besta fokking partý ársins!!! Fengum salinn sem við vildum, meira ætla ég ekki að segja hér á blogginu en þið fáið sendar nánari upplýsingar þegar nær dregur og við verðum öll í rífandi stuði.....íhaaaaa....!!!!!!

Það eru komin jól hjá mér!!! Greinilegt að ég er í prófum þar sem að ég er búin að koma jólatréinu upp og skreyta það...ekkert smá jólalegt og kósý!!! Er farin að halda það að ég sé haldin athyglisbrest,hehe. Er samt fegin að hafa skellt jólatréinu upp núna því að það lengir jólin einhvern vegin og lífgar upp á lífið í skammdeginu!!! Hefði annars ekki haft tíma fyrr en eftir 21. des og það er nú bara allt of seint!!! Trúi ekki á þessar Þorláksmessu skreytingar, þá á maður bara að vera í bænum að fá sér heitt kakó og rölta niður Laugaveginn!!!

miðvikudagur, desember 07, 2005

Fyrsta prófið búið og þrjú eftir!!! Styttist í jólafríið og AÐEINS 34 dagar í London....!!! Einnig er aðeins rúm vika í grifflugleðina og ég veit að það eru allir að farast úr spenningi...verst að ég þurfi að vera í prófum ennþá og þar að auki erfiðasta prófið á mánudaginum eftir gleðina....búhú!!! En það er lítið að gera við því og ég er enn staðráðin í því að mæta bara samt og tjútta aðeins með gellunum. Fékk þessa litlu skottu aðeins í heimsókn til mín áðan, hún er bara sætust!!! Ætla sko að vera dugleg að fá hana lánaða eftir próf!!!

þriðjudagur, desember 06, 2005

Ég er snillingur í að finna mér e-ð allt annað að gera þegar að ég á að vera að læra fyrir próf!!! Hvaðan fæ ég þetta eiginlega?? Veit allavegna að þetta er ættgengt því að hún systir mín er alveg eins, hehehe. Tókst meira að segja að næla mér í eitt glóðarauga um helgina í einu af mínum beauty treatmentum, er búin að vera að tryllast úr hlátri yfir þessu, hahahahahah!!!! En núna er ég komin á rétta leið, vonandi, hehehe!!! Setti saman myndaalbúm um daginn fyrir systur mína og varð að deila þessari mynd með ykkur, ein af uppáhaldsmyndunum mínum frá því að við vorum litlar, ekkert smá miklar monsur!!!

föstudagur, desember 02, 2005

Are you ready!!!! Jæja stelpur...þetta er alveg að fara að skella á!!! Vona að þið séuð tilbúnar í brjálaða gleði!!! Munið að láta vita hvort þið komist fyrir 7. desember og einnig að allt úr gallaefni er stranglega bannað!!!! íhaaaa....

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni