Það eru komin jól hjá mér!!! Greinilegt að ég er í prófum þar sem að ég er búin að koma jólatréinu upp og skreyta það...ekkert smá jólalegt og kósý!!! Er farin að halda það að ég sé haldin athyglisbrest,hehe. Er samt fegin að hafa skellt jólatréinu upp núna því að það lengir jólin einhvern vegin og lífgar upp á lífið í skammdeginu!!! Hefði annars ekki haft tíma fyrr en eftir 21. des og það er nú bara allt of seint!!! Trúi ekki á þessar Þorláksmessu skreytingar, þá á maður bara að vera í bænum að fá sér heitt kakó og rölta niður Laugaveginn!!!

<< Home