Verð að deila einni sögu hérna með ykkur sem að ég var að lesa!!! Kona kom til Freud til þess að leita hjálpar vegna mikilla magaverkja og óreglulegra blæðinga. Freud var sannfærður um það að orsökin væri of mikil sjálfsfróun og eina leiðin til þess að lækna hana væri að framkvæma á henni nefaðgerð!!! Fékk góðvin sinn, Fliess til þess að framkvæma aðgerðina. Nokkrum dögum síðar þurfti að gera aðra aðgerð á konugreyinu þar sem að hún var hætt komin af völdum sýkingar. Í ljós kom að grisja hafði gleymst í nefinu á kerlingagreyinu. Freud kenndi Fliess um þetta, flúði og datt í það!!!! Hahahaha, hafið þið heyrt það fáránlegra!!! Magaverkir vegna of mikillar sjálfsfróunar og best að gera þá aðgerð á nefinu!!! Hló mig algjörlega máttlausa yfir þessu, ágætt að geta lyft sér aðeins upp í þessum blessaða prófalestri. Annars bý ég bara uppi í skóla núna eins og sjá má og get ekki beðið eftir að lífið komist í eðlilegar skorður aftur. Eitt próf eftir og svo eru bara jól og stanslaust partý þar til í lok janúar!!!!

<< Home