Jæja þá er prófatörnin hálfnuð og mér bara búið að ganga vel so far!!! Reyndar er næsta próf sem er 19. des lang erfiðast og nú er ég bara komin í lærdómstörn dauðans...!!! En það eru bara 4 dagar í jólaglöggið, 19 dagar í besta partý ársins og 28 dagar í London ferðina, svo að það er nóg af skemmtilegum atburðum framundan. Ég og Bogga erum nú þegar búnar að plana meirihluta London ferðarinnar okkar og það lítur út fyrir að við verðum að framlengja því annars eigum við ekki eftir að ná að gera allt. Komst líka að því að skólinn byrjar mun seinna en ég hélt svo ég segi bara "Why not"!!! Hlakka t.d. mikið til að fara í Harrods og hitta alla gömlu vinnufélagana, versla í flottustu búðunum o.s.frv. En mest hlakka ég til að hitta vinina og skemmta mér með þeim...öss þetta verður rosalegt!!!

<< Home