Mikið rosalega var gaman á jólahlaðborðinu í gær. Frábær matur og góð skemmtun. Lítið um slúður þar sem að allir voru til fyrirmyndar í sparífötunum!!! Hittumst fyrst nokkur heima hjá mér í fordrykk og fórum svo á Fjörukránna þar sem Grýla tók á móti okkur með mjöð...þar var sungið, dansað og drukkið eins og mönnum væri borgað fyrir það...hehe. Eftirá fórum við svo heim til Þorvalds þar sem að við skemmtum okkur þar til að kominn var tími á bæinn. Get nú ekki sagt að það hafi verið mikil stemmning í bænum enda flestir heima að læra fyrir próf..eins og ég hefði nú líka átt að vera að gera!!! Við Edda gerðum þó heiðarlega tilraun að skemmta okkur en enduðum fljótlega á Subway og fórum svo bara heim. Myndir, myndir, myndir!!!!

<< Home