miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Eins og flestir sem að þekkja mig vita þá er ég ansi lagin við að gera e-ð allt annað þegar að ég á að vera að læra...það gerðist einmitt í síðustu viku!!! Átti að vera að læra fyrir próf en sá þá auglýsingu á netinu um að það væri hægt að fá frítt persónugert debetkort fyrir 1. nóv...og hvað haldið þið??? Auðvitað þurfti ég að fá mér svoleiðis, það þýddi að ég eyddi næsta klukkutímanum í að setja inn mynd, sjá til þess að hún væri að réttri stærð og svo framvegis, bara svo að ég þyrfti ekki að læra...ker azy!!! Fór svo í dag að sækja nýja kortið mitt og hér eru niðurstöðurnar!!! íhaaaaa.......miklu flottara en ykkar...hahahahha!!! Kolvitlaus með kortið um helgina!!! Snaróð!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni