Jæja þá er komið að því að segja frá gæsadeginum hennar Emblu í máli og myndum!!!
Laugardaginn 21. júlí var Embla gæsuð með pompi og prakt!!! Dagurinn byrjaði á því að tveir snaróðir sjóarar sóttu hana heim til hennar með miklum látum og tóku hana niður á bryggju að dorga!!! Að því loknu var brunað með hana að Kópavogshöfn þar sem hópurinn beið eftir henni í rífandi stuði!!!

Þar var skellt í hana nokkrum skotum, teknir nokkrir velvaldir sjóaraslagarar og síðan var skvísan dressuð upp í flotgalla og björgunarvesti svo að hún kæmist á Jet Ski!!! Tommi og vinur hans tóku hana svo í rosalega sjóferð frá Kópavogshöfn að Reykjavíkurhöfn þar sem að hópurinn tók svo á móti henni aftur!!!

Þar var farið með hana í hádegismat á Sægreifann og var í boði dýrindis fiskisúpa að hætti sægreifans!!! Stuðið hélt áfram og tekin voru þó nokkur lög við mikla kátínu annarra matargesta!!! Gæsin fékk að sjálfsögðu að bragða á hákarli og fékk hún brennivín með til að skola honum niður!!!

Næst skellti hópurinn sér í sund og notalegheit og svo var brunað á Eiðistorg þar sem Emblu var talin trú um að hún væri í leið í áheyrnarprufu sem nýjasti meðlimur Nælon söngflokksins!!! Henni leist nú aldeilis ekki á blikuna og sturtaði í sig freyðivíni og manaði í sig kjarkinn!!! Annað kom nú í ljós, þar sem að þetta reyndist nú ekki vera áheyrnarprufa heldur hljóðstúdíó Daða!!! Teknir voru upp nokkrir velvaldir sjóaraslagarar sem vakti mikla gleði og hlátrasköll!!!

Þar á eftir brunaði hópurinn heim til Bryndísar í kvöldmat og partý!!! Snæddur var kvöldmatur og svo tók við stanslaus gleði!!! Skipt var í lið og svo hófst ein allra svakalegasta singstar keppni sem ég hef nokkurn tíman tekið þátt í!!! Embla var svo að lokum krýndur singstar sigurvegari og við tók ansi skemmtilegur og forvitnilegur drykkjuleikur sem ekki er hægt að segja frekar frá, hehe!!! Allir voru komnir í rífandi stuð og dansgólfið troðið þegar að allt í einu var kominn tími til að fara í bæinn!!! Time flies when you're having fun!!!

Förinni var heitið á Sirkús og þar gerðust nú ansi fyndnir atburðir, ætla ekkert frekar að fara út í þá hér en við skulum bara segja að dj-inn hafi fengið send ansi mörg fokkmerki og ill augnráð það kvöldið, hahaha!!!

Seint um kvöldið var síðan ákveðið að kíkja eitthvað annað og varð Boston fyrir valinu!!! Gæsin ákvað reyndar að skríða heim eftir Sirkús enda búinn að vera langur dagur!!! Við hinar kíktum á Boston og rétt aðeins á KB áður en haldið var heim í fyrra laginu, enda allir þreyttir og sælir eftir daginn!!!
Myndir eru komnar á myndasíðuna mína!!!

<< Home