miðvikudagur, ágúst 01, 2007

Jæja loksins fann ég tíma til að klára ferðasöguna!!! Búið að vera brjálað að gera í vinnunni og svo fer allur auka tími í að læra, já ekkert gaman!!!

Hvert var ég komin, ó já...þegar heim var komið frá Barcelona vorum við gjörsamlega búin á því eftir ferðalagið og tókum við því bara rólega á mánudagskvöldinu, fengum okkur gott að borða og slökuðum á!!! Á þriðjudeginum var Bogga búin snemma í vinnunni og við drifum okkur í bæinn til að njóta sólarinnar!!! Seinnipartinn fórum við á Cafe Victor að fá okkur hvítvínsglas og viti menn...við hittum Solomon, strák sem að við könnuðumst við frá London!!! Við sátum heillengi fyrir utan Victor og fórum svo öll út að borða á æðislegan mexíkóskan stað!!! Eftir það ákváðum við vinkonurnar að koma okkur heim þar sem Bogga þurfti að mæta snemma í vinnu daginn eftir!!!














Á miðvikudeginum hittum við loksins Sif sem að bjó með okkur í London og þá voru sko fagnaðarfundir!!! Ég hafði ekki séð hana í allavega 3 ár og það var ekkert smá gaman að hitta hana!!! Ég, Bogga, Snædís og Sif hittumst á Cafe Luna og fengum okkur góðan mat og svo tók bara við kokteil "hour"!!! Seinna um kvöldið fórum við á Cafe Victor og þangað kom Sigrún að hitta okkur!!! Við vorum þar til lokunar en þá fóru Bogga, Snædís og Sigrún heim en við Sif vorum engan vegin tilbúnar að fara heim og fórum því á Zoo bar og að lokum á Sam's bar þar sem við vorum til 4 um morgunin, já það var sko stuð á okkur!!!














Á föstudeginum hittum við Emblu og Danna og eyddum deginum með þeim og svo um kvöldið fórum við stelpurnar á skrall!!! Bogga fór snemma heim þar sem hún þurfti að vinna daginn eftir en ég og Snædís fórum á rosalegan einkaklúbb þar sem að við dönsuðum langt fram á nótt og drukkum 30 þúsund króna kampavín í boði einhvers vinar hennar, ekki slæmt!!!!

Á laugardeginum var svo afmælisdagur Martins hennar Boggu en hann náði nú ekki mikið að halda upp á það sjálfur því að hann eyddi öllum deginum í að undirbúa veitingarnar fyrir afmæli Jónasar vinar síns sem við fórum svo í um kvöldið!!! Jónas er lögga eins og Kasper bróðir Martins og því var svo að í afmælinu voru ca 70 manns og voru u.þ.b. 90% þeirra karlkyns og ca 60% löggur....ekki slæmt, hehe!!! Vínið gjörsamlega flæddi út úr húsinu og ég verð að viðurkenna að á tímabili leist mér ekkert á blikuna!!! Já þessir danir kunna svo sannarlega að skemmta sér og það var svo sjúklega gaman að við vorum í afmælinu alveg þar til okkur var hent út um nóttina!!!














Á sunnudeginum slökuðum við bara á og svo eyddi ég mánudeginum og þriðjudeginum með Helgu systir Boggu og Boggu í bænum og á kaffihúsum!!! Á þriðjudagskveldinu flaug ég síðan heim alsæl með ferðina og get ekki beðið eftir að fara út aftur!!! Næst verð ég vonandi bara að flytja út en ég held nú reyndar samt að ég eigi ekki eftir að geta beðið þangað til og á örugglega eftir að stelast þangað í smá skrepp allavega einu sinni áður!!!

Síðustu myndirnar eru komnar á myndasíðuna mína!!!

Jæja ég vona að þetta sé nóg í bili en á næstu dögum mun ég síðan setja inn myndirnar frá gæsun Emblu sem átti sér stað þar síðustu helgi og var allsvaðaleg!!! Until then...mússí mússss!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni