Alveg finnst mér magnað hvað það er hægt að missa af sápuóperu í fleiri fleiri ár og detta svo alveg aftur inn í hana með því að horfa aðeins á 3 þætti!!!! Hahaha, já ég er dottin aftur inn í Neighbours eftir að hafa horft aðeins á 3 þætti á hlaupabrettinu!!! Fína hlaupaprógrammið er yfirleitt að horfa á Neighbours og skipta svo beint yfir á Dr. Phil þannig að eftir þessa tvo þætti er komin ágætis brennsla!!! Í dag sá ég alla Dr. Phil þættina því það var verið að endursýna þá og á morgun get ég síðan náð Neighbours þáttunum sem ég missti af í vikunni, algjör snilld, haha!!! Það væri nú samt mesta snilldin ef að þeir sýndu Grey's anatomy svona um helgar, því að ég elska þá þætti en tími engan vegin að vera með áskrift bara fyrir þá!!!

Í gær var fyrsta próf annarinnar og það gekk bara svona þrusuvel!!! Helgin er síðan bara búin að fara í undirbúning á fyrirlestri, ræktina, heimilisþrif og matarboð hjá Sigrúnu vinkonu í kvöld þannig að helgin er bara búin að vera róleg og þæginleg so far!!! Verð nú samt að viðurkenna það að Gremlings er farinn að gera aðeins vart við sig þannig að ég mun líklega reyna að draga ykkur skvísurnar á smá fimmtudagsskrall í vikunni!!!

<< Home