fimmtudagur, september 06, 2007

Yes, yes, yes!!!! Haldið þið að mín sé ekki bara að fara til útlanda um jólin, jíhaaaa!!!! Ó já búin að bóka miðann og læti!!! Ég flýg sem sagt út 22. des ásamt mömmu og brósa og er förinni heitið til Stokkhólms!!! Þaðan tökum við bílaleigubíl eða lest til Skövde til Hrefnu og verðum þar yfir hátíðarnar!!! Eftir það eða um 27-28. des ætla ég síðan að skella mér til Köben og eyða áramótunum þar í þrusustuði með vinkonunum!!! Ég kem síðan aftur á klakann 2. janúar á nýju ári tilbúin í slaginn!!! Oh þetta verður alveg æðislegt og mjög velkomin breyting á hátíðarhaldinu, enda ekki hægt að halda jól án krílanna hennar systur minnar!!!

Annars styttist óðum í brúðkaup Emblu og Danna og nú er ég farin að vera alveg hrikalega spennt!!! Ég er þvílíkt búin að vera að spara mig fyrir brúðkaupið og ekkert búin að fara út heillengi!!! Ætla reyndar að kíkja aðeins út annað kvöld í léttan fimmtudagsöl svona í tilefni þess að Bogga er komin á klakann!!! En svo er það bara bjútý trítment dauðans fyrir brúðkaupið!!! Oh hvað það verður hrikalega gaman!!! Set inn myndir strax eftir helgi!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni