Ja hérna!!!! Það er greinlega fullt tungl þar sem að ég hef sjaldan upplifað annað eins kvöld!!! Er búin að vera að læra fyrir próf í dag og ákvað að verðlauna sjálfa mig í kvöld með því að fara í bíó með Eddu og Sigrúnu. Við fórum á Walk the line, Johnny Cash myndina og hún er alveg frábær!!! Eftir myndina vorum við í svo miklu stuði og ákváðum að kíkja aðeins á næturlífið edrú. Byrjuðum á því að keyra niður Laugaveginn og þar var gjörsamlega troðið. Eftir smá umhugsun ákváðum við að leggja bílnum og fara inn á einhvern stað. Ég fór að leiðbeina Eddu um hvað væri nú best að leggja, taldi mig sko vita hvar öruggustu stæði bæjarins væru!!! Leiðbeindi henni að bílastæðinu á Grettisgötu bak við Skífuna. Þegar að við komum þangað lögðum við bílnum og ég var að lýsa fyrir Eddu hversu örugg þessi stæði væru, alveg upplýst og í íbúðarhverfi.

Ég var rétt búin að sleppa orðinu þegar að við heyrum brothljóð og lítum í áttina og sjáum að það er verið að mölva glugga innan frá í einu húsinu þarna og út stökkva nokkrir hettuklæddir gaurar!!! Ég byrjaði að paneka, en varð ekki almennilega hrædd fyrr en ég sá að einn þeirra var að sveifla byssu á fullu!!! Reif í stelpurnar og við drulluðum okkur inn í bíl áður en að við sæum þá almennilega og að þeir sæu okkur því að við vorum sko ekki tilbúnar að blanda okkur í þetta!!! Þegar við töldum okkur vera óhætt brunuðum við svo í burtu í hálfgerðu sjokki!!! Tókum einn annan rúnt niður Laugaveginn til að leita að stæði og sáum þá fullt af lögreglubílum og mönnum við húsið þar sem að þetta gerðist, úff!!!!!
Eftir þetta væga taugaáfall fundum við loksins stæði og skelltum okkur aðeins inn á Óliver, töldum að þar sem að þetta væri með stærri stöðum bæjarins þá væri nóg pláss fyrir svona edrú mýslur eins og okkur, BIG MISTAKE!!! Það var svo troðið þarna inni og allir svo ölvaðir að maður gat varla komist áfram um nokkur hænufet!!! Við drifum okkur bara aftur út og fórum á Kaffi Kúltúra. Þar hittum við Dodda og félaga og fengum okkur sæti hjá þeim að spjalla. Undir lokin svona bara til þess að toppa kvöldið mættu tveir ólíkustu menn ever saman inn á staðinn, þetta voru engir aðrir en Bobby Fisher og Raul einkaþjálfari. Upphófust því miklar vangaveltur hjá okkur um hvað í veröldinni þessir tveir menn ættu sameiginlegt, en þeirri spurningu er enn ósvarað!!! Þetta kvöld sem átti að vera svo rólegt endaði sem sagt í því að vera mesta hasar kvöld sem ég hef upplifað í langan tíma!!!

<< Home