Úff hvað það var gaman í Eurovision partýinu hjá Hildi á laugardaginn!!! Ása var búin að skipuleggja Eurovision drykkjuleik sem fór þannig fram að að allir voru látnir velja þau lög sem þeir héldu að yrðu í efstu þrem sætunum og það lag sem þeim fannst verst. Allir tóku svo Gajol staup þegar versta og besta lagið þeirra var spilað!!! Í lokin stóðu uppi 3 sigurvegarar, ég, Hildur og Fríða og fengum við afganginn af Gajol flöskunni sem við svo deildum með restinni af hópnum!!! Æsingurinn var það mikill þegar að úrslit leiksins voru tilkynnt að greyið Embla endaði á gólfinu, hahah!!! Að keppni lokinni var síðan tónlist spiluð og dansað þar til tími var kominn að fara í bæinn!!! Skelltum okkur á Vegamót og í lokin kíktum við svo nokkrar á KB en þar var ekki mikið stuð svo að haldið var heim!!!
MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!!!
MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!!!

<< Home