fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Þá er fyrsta brúðkaups boðskortið komið í hús!!! Lítur út fyrir að ég sé að fara í allavegna 3 brúðkaup í ár. Eitt hérna heima í apríl, eitt i Kaupmannahöfn í júlí og eitt í London í byrjun september!!! Það er líka bara eins gott þar sem að ég keypti æðislegan kjól síðustu helgi, en hann passar nú ekki við öll tilefni, mesti brúðkaupskjóll sem ég hef nokkru sinni séð, hehe!!! Það verður voða gaman að skella sér út í þessi brúðkaup, svo gaman að sjá hvernig brúðkaup eru í öðrum löndum. Fórum í brúðkaupið hjá Chris og Gigi til Rómar sumarið 2003 og það var nú eitt það stórkostlegasta sem ég hef upplifað!!! Þvilík fegurð, giftu sig í kirkjunni hjá Colosseum og svo var veislan haldin á svakalegu herrasetri þar sem boðið var upp á 7 rétta kvöldverð, úff, og dansað fram eftir nóttu!!! Þetta er líka svo góð afsökun að skella sér til útlanda, held að við verðum bara langa helgi í Köben en ætlum líklega að vera 2-3 vikur í London og fara bæði á V- og Reading Festivölin þar sem að við erum búnar að redda okkur back-stage miðum, jíííhha!!!! Núna er bara að bíða sumarsins!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni