fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Jæja helgin búin og þetta var ekkert smá mikil keyrsla!!!!! Byrjuðum fimmtudagskvöldið á því að ná í Ben, Lee og Dassie út á flugvöll og fórum svo beint á pöbbarölt! Enduðum síðan heima hjá mér ásamt Ægi frænda í smá eftirá partý langt frameftir!!! Á föstudaginn sýndum við svo strákunum borgina og þeir skelltu sér í sund. Seinna um kvöldið náði ég svo í Chris og Andy út á flugvöll og við fórum í partý til mín! Þaðan lá leiðin beint í bæinn á Óliver og svo Kaffibarinn. Ekkert smá skemmtilegt kvöld!!! Á laugardaginn skelltum við okkur svo í Bláa Lónið og um kvöldið hélt Bogga dúndur partý!!! Þaðan fórum við á Kaffibarinn og vorum þar til lokunar. Á sunnudaginn var síðan skellt sér á Gullfoss og Geysir og að lokum í Humarveislu við Fjöruborðið!!! Mánudaginn héldu drengirnir síðan af landi brott sælir og sáttir og geta ekki beðið eftir að koma aftur í sumar!!! Er enn að bíða eftir myndum frá strákunum en set þær inn um leið og ég get!!!!


eXTReMe Tracker Á sí­ðunni