sunnudagur, febrúar 26, 2006

Núna er Pási kominn í mig, held ég sé barasta að tapa mér!!!! Búin að vera heima alla helgina að undirbúa mig fyrir þessa ritgerð, bara búin að lesa en ekkert byrjuð að skrifa, er e-ð svo andlaus!!! Anyways þá blasti við mér þessi stærðarinnar auglýsing á baksíðu Fréttablaðsins í morgun þar sem verið var að auglýsa ódýrar ferðir með Iceland Express og núna er ég alveg að tapa mér!!! Langar svo að skella mér út næstu helgi!!! Í tómu tjóni hérna, hehe!!! Sko, það er afmæli hjá Chris á laugardaginn og leaving partýið hans Lee, en hann er að fara að flytja til Ástralíu!!! En aftur á móti á þetta alltaf eftir að kosta einhvern pening og ég er að fara þangað í sumar hvort sem er!!! Á svona stundum vildi ég að ég væri bara að vinna, þá ætti ég nógan pening og þetta væri ekki neitt mál, eða þá bara að ég væri ennþá úti!!! Þoli ekki þegar það kemur svona djöfsi í mig, heheheeh, hvað á ég að gera???? Vera kærulaus og skella mér út, eða vera samviskusöm og spara??? That is the BIG question!!! Kemur í ljós!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni