Jæja lítið að frétta héðan nema nóg að gera í skólanum eins og vanalega. Þarf að skila ritgerð í næstu viku og er með nokkurra blaðsíðna hefti með orðum sem ekki má nota í ritgerðinni. Ef ég nota t.d. orðið "endurspegla" fæ ég ekkert fyrir ritgerðina, hahahah!!! Er ekki alveg að skilja þennan kennara en það er nú eins gott að lesa þetta hefti yfir vel og vandlega áður en ég skrifa þessa blessuðu ritgerð!!! Ætla því að eiga rólega helgi og jafnvel passa litlu ungana hennar systur minnar á laugardaginn og svo var ég að vonast til að fá að fara með Eddu á hestbak um helgina!!! Langt síðan ég hef farið á bak og mér langar líka svo að vera alvöru kúrekastelpa, íííhhhaaaa!!!!!

<< Home