þriðjudagur, janúar 17, 2006

LONDON: DAGUR 2

Vöknuðum í rífandi stuði tilbúnar í svaka verslunarleiðangur. Skelltum okkur niður í bæ og kíktum í helstu búðirnar. Reyndar ekki mikið úrval út af þessum blessuðu útsölum en við náðum að strauja kortin nokkrum sinnum. Eftir nokkra tíma í búðunum skelltum við okkur á bar í Soho til að fá okkur smá hressingu og fengum þá þau skilaboð að búið væri að setja okkur á gestalistann á tónleikana hjá Graham síðar um kvöldið. Fórum því beint á tónleikana þaðan og þeir voru frábærir. Að þeim loknum fórum við svo í eftirá partýið sem að var alveg mergjað. Tók mjög fáar myndir því að ég var að skemmta mér allt of vel en HÉR eru þær sem að ég tók!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni