Bibba beib komst sko ekki upp með þessa glötuðu gæsun sem við héldum fyrir hana á fimmtudaginn, ó nei, það var bara "fake" gæsun!!! Á laugardaginn rifum við okkur upp eldsnemma og hittumst allar heima hjá Ásdísi!!! Við gáfum Bibbu gjafabréf í nudd á fimmtudeginum og var búið að panta tíma fyrir hana klukkan 9 á laugardeginum. Þegar að hún var að verða búin í nuddinu örkuðum við frá Ásdísi á Hótel Sögu þar sem að við biðum hennar í felum!!!

Greyið stúlkan hafði ekki hugmynd um hvað var i vændum!!! Þegar hún var loksins búin brá henni heldur betur þar sem að 20 manna hópur kom hlaupandi og öskrandi á hana þegar hún kom upp stigann!!!

Þegar hún var loksins búin að jafna sig fórum við aftur heim til Ásdísar í brunch!!! Þangað kom ungur læknir sem að gifsaði handlegginn á Bibbu við bjórglas svo að hún væri aldrei tómhent!!!

Um tvö leytið hélt svo dagskráin áfram og við drifum okkur í einn bjór á Vegamótum!!! Bibbu sá þar sjálf um að skenkja sér í glas en gekk hálfilla með bjórdæluna til að byrja með, ekki beint efni í barþjón, haha!!!

Næst á dagskrá var Keramík kennsla þar sem að við vorum búnar að velja brúðarstell fyrir skötuhjúin og komið var að því að mála það!!! Mikill metnaður var í gangi nema hjá gæsinni sjálfri sem tókst að mála jafnvel þá allra ljótustu skál sem sést hefur, hahaha, enda var skvísan komin vel í glas!!!

Að því loknu skelltum við okkur í pottinn á Hótel Loftleiðum þar sem að sötrað var á freyðivíni og nartað í súkkulaðihjúpuð jarðarber, nammi namm!!! Allar skvísurnar gerðu sig svo sætar og fínar og brunuðu í mat til Hildar. Mamma Bibbu var búin að matreiða dýrindis kjúklingarétt fyrir okkur og Dojli búin að gera frábæran eftirrétt!!! nammi namm!!!

Þegar að borðhaldi var lokið og allar skvísurnar komnar vel i glas var komið að Sing Star keppni dauðans og ég býst við að þó nokkrar stúlknanna séu hásar í dag!!! hehe!!! Dj Bogga sá svo um að halda uppi rífandi stuði þar til að tími var kominn til að fara í bæinn!!!

Búið var að setja okkur á gestalistann á Vegamótum svo að við drifum okkur þangað og dönsuðum þar fram undir morgun!!!! Takk fyrir æðislegt kvöld skvísur, hlakka til að endurtaka danstaktana á laugardaginn í brúðkaupinu, vá hvað það á eftir að vera gaman!!!

MYNDIR FRÁ GÆSUN BIBBSEN HÉR!!!!!
MYNDIR FRÁ FAKE GÆSUN BIBBSEN HÉR!!!!!

<< Home