Þá er ég búin að slá því á fast!!! Á leiðinni í brúðkaup til Kaupmannahafnar í júlí, jibbý!!! Keypti miðann í gær þannig að núna er ég búin að kaupa miðann þangað og miðann til London í ágúst!!! Verð reyndar bara í 5 daga í Köben en ætla að vera í tæpar 3 vikur í London!!! Er samt ekki jafn flott á því og hún Bogga skvísa sem er á leiðinni til Parísar, Köben, New York og sjálfsögðu London!!! Hún á varla eftir að vera á landinu í sumar!!! En það verður æðislegt að komast í brúðkaupið til Sigrúnar og Jespers og ég veit að það á eftir að vera alveg ótrúlega flott!!! Ég flýg út á fimmtudegi með Ásdísi og Agnari, Bogga fer deginum á undan og svo flýg ég heim með Boggu skvísu á þriðjudeginum þannig að þetta verður ágætis frí!!! Jeminn, ég get ekki beðið!!!

<< Home