Things can only get better...!!! Ó já það er alveg rétt!!! Snædis er búin að bjóða mér með sér á Robbie Williams tónleika fyrsta kvöldið mitt í Köben!!! Ekki það að ég sé mesta Robbie fan í heimi en hann er nú ágætur kallinn!!! Ég er samt mest spennt að sjá hvernig Snæda sæta höndlar þetta því að fyrir þá sem ekki vita það þá ætlar hún sér að giftast þessum manni og mín reynsla er sú að hún fær það sem hún vill, ALLTAF!!! Þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvað gerist þetta kvöld!! Annars er nú mest lítið að frétta fyrir utan það að ég er með verkfælni dauðans og er ekki að nenna þessu!! Langerfiðasta prófið á morgun, so wish me luck!!!!

<< Home