mánudagur, maí 15, 2006

Vá þvílík helgi!!! Hélt próflokapartý á laugardaginn og jeminn hvað það var mikið stuð!!! Mætti alveg heill hellingur af stelpum og það var dansað fram á nótt!!! Lætin voru svo rosaleg að meira segja hillan í stofunni hrundi niður, hahahahhaha!!! Að sjálfsögðu lét nágranninn sjá sig að lokum en beið þó með það til 2, hehe!!! Brunuðum síðan á Vegamót og verður þeirri bílferð seint gleymt!! Vorum að ég held 9 í bíl sem var ætlaður 5 manns, geri aðrir betur, haha!!! Vorum sem betur fer á gestalista á Vegamótum og vorum ferjaðar inn í gegnum eldhúsið sem var nokkuð skondið!!! Frábært kvöld í alla staði og ég skemmti mér konunglega!!! MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!! x

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni