Ein helgin í viðbót liðin og hún var frekar pökkuð í þetta skiptið!!! Fór í heimsókn til Maju beint eftir vinnu á föstudaginn til að kíkja á litlu prinsessuna hana Önnu María og grallarann hann Stefán Þorra!!! Ætlaði bara að vera heima um kvöldið en Hilli hringdi og við ákváðum að hittast og fá okkur smá rauðvín, það endaði síðan með því að við þræddum helstu staði bæjarins og skemmtum okkur konunglega!!!

Í gær fór ég síðan í hádegismat til pabba í tilefni tvítugsafmæli litla bróa og svo var líka kvöldmatur hjá mömmu af sama tilefni!!! Um kvöldið var mér boðið í tvær útskriftir, önnur hjá Agnari og hin hjá Ægi frænda og var sú haldin úti í Viðey!!! Ég náði því miður ekki að fara í báðar og var allt kvöldið hjá Ásdísi og Agnari!!! Seint og síðar meir eftir smá heimsókn frá lögreglunni var kíkt á Barinn!!!

Átti sem sagt mjög góða helgi en er alveg á því að næstu helgi langi mér að komast aðeins út úr bænum í smá afslöppun, kíkja í sumarbústað eða eitthvað álíka!!!

<< Home