mánudagur, júní 05, 2006

Ég er enn ekki að ná hvað tíminn flýgur!!! Það er kominn júní og ég á barasta bágt með að trúa því, en það þýðir að það styttist í allar utanlandsferðirnar mínar, hehe!!! Búin að eiga góðan dag á Vegamótum og í bíltúr með Sigrúnu sætu!!! Framundan er stutt vinnuvika og svo á föstudaginn kemur Gary til landsins!!! Ég er gjörsamlega að deyja úr spenningi enda er hann með skemmtilegri mönnum sem ég hef kynnst!! Það er voða lítið plan fyrir helgina enda veit ég að það verður djammað út í eitt!!! Býst ekki við því að sýna honum mikið meira en borgina og Bláa Lónið, híhí!!! Bogga er búin að framlengja dvöl sinni í Danmörku fram á föstudag þannig að það lítur út fyrir að ég fari ein að sækja hann á flugvöllinn en hún kemur til landsins stuttu seinna og ég held að það verði allt vitlaust, haha!!!


eXTReMe Tracker Á sí­ðunni