laugardagur, júní 03, 2006

Jæja við grillskvísurnar höfðum heldur betur gaman í kvöld!!! Maddamma Sigrún sá að mestu leyti um eldamennskuna eins og fyrri daginn og stóð sig með einstakri prýði að venju!!!














Í stað þess að grilla steik ákváðum við að grilla kjúklingaspjót sem að voru bara snilld, yummi!!! Ég held að ég sé enn södd, úfffff!!!!














Eftir mikið suð fékk ég líka aðeins að prófa grillhæfileika mína og þeir eru bara nokkuð góðir, gerði reyndar lítið annað en að snúa spjótunum en hey, einhver verður að sjá um skítaverkin, hehe!!!














Síðan tók við sjónvarpsgláp og kjaftagangur þar til að við vorum báðar nánast að lognast út af!!! Þegar ég var farin að verða rangeygð af þreytu ákvað ég að skella mér heim að sofa en viti menn núna er ég barasta ekkert þreytt!!! Arrrggg svo týpískt ég, hehe!!! Oh well, vonast til skralla aðeins meira á morgun!!! mússí múss!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni