Oh hvað það er æðislegt að eiga svona þriggja daga helgi!!! Er nú þegar búin að ná að gera fullt um helgina og það er samt heill frídagur eftir, jíhaaa!!! Kíkti aðeins út á lífið með Sigrúnu í gær!! Fórum í afmæli á Hverfisbarnum og kíktum svo á nokkra aðra staði!!! Mjög skemmtilegt kvöld og í lokin fór ég með Óttari og Halli frænda á Pizza Pronto en þar var nú bara geðveiki, svoooo mikið að gera!!! Aldrei myndi ég nenna að vinna á svona stað að afgreiða blindfulla vitleysinga!!! Svo til að toppa kvöldið rákumst við á Lalla Johns og félaga iðna við drykkju sína á torginu, hehe!!!

<< Home