fimmtudagur, júní 29, 2006

Vika í Köben!!!!!

Þá fer þessari viku að ljúka og aftur að koma helgi!!! Þetta verður æðisleg helgi þar sem að ég ætla mér að gera nákvæmlega ekki neitt nema slappa af og njóta lífsins!!! Á föstudaginn ætla ég bara að dúlla mér e-ð og svo á laugardaginn ætla ég að skella mér upp í sveit til Sigrúnar og Dóra rétt hjá Reykholti!!! Ætla að troða mér inn á þau sem þriðja hjólið og gista eina nótt!!! Oh hvað það verður nice, grillsteik, bjór, pottur og Sigrún gólandi í nýju Singstar græjurnar sem hún var að fá í afmælisgjöf frá sínum heittelskaða ( held hann hafi ekki alveg gert sér grein fyrir því hvað hann var að gera sjálfum sér, hahaha)!!!! Anyways þá vona ég bara að þið eigið góða helgi öll sömul!!! Mússí múss!!!


eXTReMe Tracker Á sí­ðunni