fimmtudagur, júlí 13, 2006

Úff!!! Síðustu dagar eru búnir að vera rosalegir!!! Er búin að skemmta mér æðislega í Kaupmannahöfn og langaði sko ekkert að koma heim!!! Var alveg að fara að framlengja en varð að vera skynsöm þar sem að ég er að fara til London fljótlega!!! Anyways hér er ferðasagan í stuttu máli: Kom út á fimmtudagskvöldið og fór beint á tónleikana!!! Þar var endalaust mikið af fólki og það var bara gaman á tónleikunum og djamminu eftir þá!!!















Á föstudaginn vorum við fastar í íbúðinni að mestu leyti vegna ónæðis frá blaðamönnum en á laugardaginn var svo aðalviðburðurinn, brúðkaupið!!! Vá hvað þetta var fallegt brúðkaup og brúðhjónin voru endalaust falleg!!! Athöfnin fór fram í kirkju sem var ótrúlega lík Hallgrímskirkju að innan!!! Eftir hana fórum við heim til foreldra Sigrúnar þar sem að haldin var kampavínsmóttaka í garðinum!!! Að henni lokinni var haldið á yndislegan veitingastað í Frederiksberg þar sem að veisluhöldin fóru fram!!! Boðið var upp á yndislegan mat og endalaust af frábæru víni!!! Eftir mat og ræðuhöld kom djazz hljómsveit sem lék fyrir dansi langt fram á nótt og við skemmtum okkur konunglega!!!














Á sunnudaginn var svo vaknað snemma og haldið út í góða veðrið!!! Við byrjuðum á því að fara i Rósenborgargarðinn og þar kíktum við inn á lítið safn þar sem hægt var að skoða skartgripi og kórónur drottningarinnar!!! Bryndís og Martin komu að hitta okkur með Símon Karl og við fórum öll saman á Nyhavn!!! Þar var sötraður bjór í miklu magni og hlustað á djazz í góða veðrinu!!!














Seinnipartinn bauð svo Martin kærasti Boggu okkur í grillveislu til sín!!! Þar grillaði hann æðislegan mat ofan í okkur og fullt af öðru fólki!!! Eftir matinn fóru strákarnir svo að horfa á leikinn á meðan við stelpurnar héldum eitt skemmtilegasta eldhúspartý ever!!! Það var mjög gaman hjá okkur og allir í rífandi stuði!!! Síðar um kvöldið fórum við síðan á einhvern brjálaðan klúbb og vorum þar langt fram á nótt í banastuði!!! Á mánudeginum fór ég svo til Malmö að hitta Dýrleifu og Jóa og var þar fram á þriðjudag!!! Þá var heimferðadagur og lítið gert nema hanga á kaffihúsum með Snædísi þar til tími var kominn til að fara út a flugvöll!!!! Nú er ég komin heim og er enn í sæluvímu eftir ferðina því hún var æðisleg!!!!

Ég setti lykilorð á myndirnar í þetta skiptið svo þið þurfið að vita hvað systir mín heitir eða hafa samband við mig til að geta skoðað þær!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni