miðvikudagur, júlí 26, 2006

Sösssssss.... það liggur við að maður sé bara enn að jafna sig eftir partýið á laugardaginn enda var það bara rosalegt!!!! Byrjuðum á því að hittast nokkur heima hjá Ásdísi og svo tókum við ferjuna yfir um 9!!!














Til að byrja með voru allir mjög dannaðir en það var nú fljótt að breytast þegar á leið, hehe!!! Þátttaka var frábær og bara vel flestir af vinunum á svæðinu!!! Tveir DJ-ar þeyttu skífum allt kvöldið ásamt Ægi sem skellti sér þónokkrum sinnum bak við græjurnar!!!















Eins og sjá má var stemmning í hámarki og fólk gjörsamlega að tryllast út gleði!!! Það var dansað uppi á stólum, borðum, steinum og hverju sem hægt var að dansa á!!! Áfengið gjörsamlega flæddi og því enduðu flestir í bullinu, þar á meðal ég, haha!!!















Ég er ekki búin að setja inn neinar myndir þar sem ég bý ekki heima hjá mér í augnablikinu og veit ekkert hvenær ég fer næst heim!!!! En í sárabætur fékk ég lánaðar nokkrar myndir frá Danna Tígur og set hér inn slóðina á myndirnar hans!!! Hann tók hvorki meira né minna en 420 myndir sem eru allar komnar á netið og á þeim má sjá geðveikina sem var í gangi, þar á meðal þegar Ægir stakk sér í sjóinn!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni