fimmtudagur, september 07, 2006

Best að halda áfram með ferðasöguna!!! Þetta er svo mikill aragrúi af myndum að ég verð heila eilífð að setja þetta inn ef ég dríf mig ekki!!! Anyways þá á mánudeginum eftir V-festivalið vorum við bara heima að slappa af um daginn og fórum síðan út að borða á La Porchetta með genginu og fórum svo bara snemma heim að hvíla okkur!!!














Á þriðjudeginum vorum við alveg á því að fara bara til Kaupmannahafnar, komnar með nóg af djamminu og skítnum í London!! Shearer og Andy héldu nú ekki og komu bara og sóttu okkur til Ben og fóru með okkur beina leið á pöbbinn að hressa okkur við!!! Eftir að allir voru komnir í gírinn var haldið til Camden, kíkt örstutt á tónleika með Ben og svo fórum við að hitta vinina á öðrum pöbb í hverfinu!!! Eftir ágætis semi-djamm tókum við Bogga síðan Easy-Jet leigubíl heim, við gjörsamlega flugum alla leiðina!!!














Á miðvikudeginum slökuðum við líka bara á enda voru stelpurnar væntanlegar um kvöldið!!! Um kvöldið hittust allir á Hoxton Square og við biðum þar til stelpurnar mættu á svæðið!!! Seint og síðar meir komu þær í rífandi stuði nánast beint úr fluginu og þá var farið að djamma á Jaguar Shoes!!! Þar á eftir var síðan kíkt á Mother Bar og voru flestir orðnir frekar skrautlegir í lok kvöldsins!!!














Á fimmtudeginum skelltum við okkur svo í bæinn og stelpurnar versluðu eins og brjálæðingar!! Fórum og fengum okkur Sushi og skelltum okkur svo með alla innkaupapokana á pöbbana í Camden!!! Hittum fullt af gamla staðnaða liðinu og skemmtum okkur konunglega, tókum kvöldinu þó bara rólega þar sem að við þurftum að vakna snemma daginn eftir til að fara á Reading, en meira um það seinna!!!














MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni