Úfffffff hvað það er gott að vera komin heim!!! Ég hefði aldrei getað trúað hvað þetta væri lengi að líða!!! Kom heim seint í gærkveldi með bullandi hita, ljótan hósta og beinverki! Búin að vera hálfveik síðan á laugardag, búhú!!! Ég er þó búin að afreka að setja inn myndirnar frá því á V-festivalinu og það var bara snilld!!! Fórum þangað snemma á laugardeginum samferða Ben og Shearer og hittum þar allt gengið!!!

Vorum með baksviðsmiða alla helgina í boði Paul Weller sem þýddi ótarkmarkaður aðgangur um allt svæðið og frír matur og áfengi!!! Sáum endalaust mikið af frægu fólki eins og Gary Lucy, Gavin DeGraw sem kom bara að spjalla við okkur og af sjálfsögðu nýjustu bestu vinkonu Boggu hana Coleen, konu Wayne Rooney, sem gerði allt til þess að dansa með okkur, hehe!!!

Um kvöldið dönsuðum við svo eins og brjálæðingar við Beck og Radiohead!! Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel á tónleikum eins og Radiohead tónleikunum!!! Og þegar þeir tóku Creep þá hélt ég að allt ætlaði um koll að keyra!!!

Dagurinn eftir var sko ekkert síðri!! Vöknuðum snemma og fórum í sund og svo að borða!! Það á eftir drifum við okkur að ná fyrstu hljómsveitunum á sviði og svo var bara chillað baksviðs með kokteila og kampavín og rölt um!! Við horfðum á Sugababes spila og svo var komið að því að fara upp á svið með Paul Weller!!!

Það var það rosalegasta sem ég hef upplifað, að standa uppi á sviði fyrir framan 60 þúsund manns!!! Algjörlega ólýsanlegt!!!

Síðan djömmuðum við allt kvöldið með Dandy Warhols og skemmtum okkur frábærlega vel!!! Þetta var sem sagt ótrúleg helgi og reyndar bara ferðin í heild sinni enda fullt af sögum sem eiga eftir að koma, t.d. Reading festivalið sem var ekkert síðra en V-festivalið!!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!

<< Home