Og þá er loksins komið að Reading hátíðinni!!! Við vöknuðum eldsnemma um morguninn þar sem við vorum búin að panta 7 manna leigubíl til að fara með okkur á hátíðina, þvílíkur stæll á okkur, hehe!!! Ása mætti til okkar klukkan 10 og hálftíma síðar vorum við lögð af stað!! Dassie og mjög furðulegur vinur hans fengu að samferða okkur og gekk öll leigubílaferðin út á það að troða í þá, og okkur, eins mörgum Opal skotum og hægt var, hehe!!! Þegar við mættum á svæðið var æðislegt veður og fullt af fólki komið!!! Við byrjuðum bara að fá okkur öl baksviðs og njóta veðursins þar til að fyrstu böndin stigu á svið!!!

Sumir voru greinilega búnir að fá sér aðeins of mikið snemma um daginn og fengu sér því bara blund á miðju túni!!! Við vorum aftur á móti í essinu okkar og Ásdis gjörsamlega að farast úr spenningi út af Belle & Sebastian!!! Skvísan var mætt með sérhannað bol í tilefni dagsins og gat ekki beðið eftir að fara í hann!!!

Á meðan við biðum eftir að þeir færu á svið fórum við að sjá Peaches spila og að mínu mati var hún með eitt besta show hátíðarinnar, hún var bara geðveik!!! Bogga komst í tæri við gasblöðrur og gjörsamlega tapaði sér og ég get sagt það að ég hló nánast allan daginn!!!!

Svo var loksins komið að Belle & Sebastian og Ásdís tók þá tónleika með stæl!!! Svona á maður að skemmta sér við uppáhalds hljómsveitina sína, mér er enn illt í maganum ég hló svooo mikið!!!! Hún var ekki lengi að skella sér á háhest á einhverjum gaur, hoppa og skoppa út um allt og komast ansi nálægt því að komast upp á svið!!! Go Ásdís!!!

Seinna um kvöldið var síðan sú hljómsveit á sviði sem ég beið spenntust fyrir, Primal Scream!!! Þeir voru hreint út sagt ótrúlegir!!! Ég horfði á helminginn af showinu í þvögunni og skellti mér svo upp að sviðinu til að horfa á restina!!! Frábært að vera með svona miða sem leyfa manni að sjá showið svona upp við sviðið!!! Þegar þeir voru búnir á sviði hitti ég síðan Mani og það voru heldur betur fagnaðarlæti enda liðin nokkur ár síðan ég sá hann síðast!!!!

Að lokum tók við heljarinnar partý í bjórtjaldinu baksviðs þar sem var dansað eins og brjálæðingar og fólk komið upp á borð og stóla í æsingnum, eða vorum það kannski bara við?? haha

Að lokum röltum við svo að hótelinu sem við vorum búnar að segja leigubílstjóranum að sækja okkur en viti menn enginn leigubíll!!! Bogga byrjaði að fiffa málin og fékk að vita að það væri klukkutímabið!! Við kipptum okkur ekkert upp við þetta og skelltum okkur bara á hótelbarinn!!! Nokkrar af stelpunum fengu sér blund þar á meðan ég og Jonesy skelltum okkur bara á barinn, hehe!!! Seint og siðar meir um nóttina komum við svo til London alsælar með daginn og fullt af frábærum minningum!!! Takk fyrir æðislega ferð stelpur!!! Luv ya!!!!
MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!

<< Home