þriðjudagur, október 03, 2006

Jæja ég nenni ekki að bíða lengur eftir fleiri myndum svo ég ætla bara að klára ferðasöguna og það bætast bara fleiri myndir við seinna!!! Ég á reyndar voða fáar myndir frá Kaupmannahöfn enda var minniskortið nánast orðið stútfullt!!!
Ég kom til Köben á miðvikudag og ég og Snædís fórum svo að hitta Boggu um kvöldið á litlu sætu kaffihúsi þar sem að Clemme vinur Martins hennar Boggu og einhver vinur hans komu einnig að hitta okkur!!! Síðar um kvöldið fórum við svo að hitta Martin og Sigrúnu og fórum á einhvern bar sem var opinn seint og allir þar orðnir frekar skrautlegir, farnir að taka tekíla skot af fólki og þess háttar!!!















Daginn eftir leigðum við Bogga okkur hjól og hjóluðum um borgina!!! Við ákváðum svo að fara og fá okkur e-ð í gogginn um eftirmiðdaginn og einhvern veginn enduðum við bara þar langt fram á kvöld enda voða skemmtilegir þjónar á staðnum!!! Seint og síðar meir hjóluðum við frekar skrautlegar á Sam's bar að hitta Martin og þetta var all svaðalegt kvöld!!! Við gjörsamlega töpuðum okkur í karaokee-inu, aðallega ég, og Bogga náði frekar góðri myndaseríu af actioninu!!! Martin söng á þýsku, ég stal lögum af öðrum í gríð og erg og Bogga hló sig máttlausa, hahha!!!!














Á föstudeginum hittumst við stelpurnar svo í hádeginu á kaffihúsi og fengum okkur að borða og svo var haldið í spa þar sem við fórum í aróma bað, nudd, pott og gufu!!! Það var alveg yndislegt og við vorum svo endurðnærðar eftir á!!! Um kvöldið fórum við svo á Mew tónleikana í tívolíinu og þangað komu Jesper, Sigrún, Martin, Clemme og Egill að hitta okkur!!!














Eftir á fórum við svo á Cafe Victor og svo á einhvern rosalegan VIP stað þar sem maður þarf að hafa lykil til að komast inn á!!! Ekki spurja mig hvernig en einhvern vegin reddaði Snædís okkur inn og þar dönsuðum við eins og brjálæðingar og drukkum allt kampavínið sem var í boði, haha!!!!














Á laugardeginum fórum við svo í brunch nálægt þar sem Snædís býr og hittum Boggu á kaffihúsi í bænum!!! Um kvöldið var síðan förinni heitið á veitingastaðinn hans Martins þar sem við fengum æðislegan mat og fullt af víni!!! Jói frændi kom frá Svíþjóð að hitta okkur og Egill kom með okkur á tjúttið aftur!!! Við fórum á Cafe Rouge sem er barinn á St. Petri hótelinu, rosalegur staður, og eftir það kíktum við á nokkra late night staði!!! Ég var reyndar mjög róleg þar sem ég var komin með bullandi hita og hálsbólgu en ég get ekki sagt það um hina, hahahah!!!!!














Á sunnudeginum var ég orðin fárveik en orkaði samt að fara í brunch heim til Sigrúnar og Jespers og það var æðislegt!!! Síðan tóku bara við beinverkir og hiti og ég lá bara fyrir restina af deginum!!! Einhvern vegin drullaði ég mér út á mánudeginum að hitta Boggu og Martin en var mjög stutt sökum slappleika!! Svo var bara komið að heimferð um kvöldið og ég get nú ekki mælt með því að fljúga svona veikur!!!! úfffff!!!
Svo er bara komið að næstu utanlandsferð!!! Ótrúlega fljótt að líða, en ég er viss um það að þessi ferð verði ekkert síðri!!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni